Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Aðsent

Klárum sameininguna – lækkum álögur
Laugardagur 18. apríl 2026 kl. 09:20

Klárum sameininguna – lækkum álögur

Einn af kostunum við sameiningu Garðs og Sandgerðis í Suðurnesjabæ árið 2018 var að fleiri íbúar standa undir samfélaginu og á sama tíma náðist aukin hagkvæmni í rekstri.

Það kostar nefnilega að reka sveitarfélag og það erum við íbúar, fyrirtækjaeigendur og ríkið sem stöndum undir því.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Frá stofnun sveitarfélagsins hefur afkoman verið jákvæð, sem er gott fyrir okkur íbúa. Það ætti því að gefast tækifæri til að nýta þessa góðu afkomu í okkar þágu.

Og það má alveg hrósa tveimur fyrrverandi bæjarstjórnum því við höfum framkvæmt vel í sveitarfélaginu fyrstu 8 árin, sem auðvitað er fjármagnað með okkar sameiginlegu fjármunum og lántöku sem við þurfum að standa undir.

Auðvitað verðum við aldrei öll sammála um hvort fjármunum sé varið í „réttu“ hlutina og þar verða eðlilega skoðanaskipti.

Til að samfélagið dafni þurfum við áfram að fjárfesta í leikskólum, grunnskólum og mannauði almennt. Við megum heldur ekki gleyma eldra fólkinu sem hefur lagt sitt af mörkum til að byggja upp samfélagið – það virðist því miður stundum gleymast.

En nú tel ég að tími sé kominn á aðgerð sem flestir íbúar og fyrirtækjaeigendur geta sammælst um, að lækka álögur á fasteignaeigendur.

Frá árinu 2018 hafa tekjur sveitarfélagsins af fasteignaskatti hækkað gríðarlega. Sú hækkun lendir beint á heimilum og fyrirtækjum. Ástæðurnar eru bæði fjölgun fasteigna og veruleg hækkun fasteignamats. Þó að hækkun fasteignamats geti litið vel út á pappír og sé í sjálfu sér góð fyrir fasteignaeigendur, skiptir það oft litlu máli í daglegu lífi fólks. Því flestir fasteignaeigendur eiga húsnæði til að búa í en ekki til að selja–það sem skiptir máli eru mánaðarleg útgjöld.

Hins vegar er ljóst að tekjur sveitarfélagsins lækka ef álagningarprósenta fasteignaskatts er lækkuð, og það hefur bein áhrif á reksturinn og fjárfestingar.

Spurningin er þá: Hvernig tryggjum við áfram góða þjónustu og áframhald í fjárfestingum ef tekjur sveitarfélagsins lækka?

Svarið er einfalt – við þurfum að lækka kostnað, hagræða í rekstri.

Í dag eru reknar tvær bæjarskrifstofur og nú þegar er búið að taka ákvörðun um að sameina þær sem að mínu mati er gert allt of seint. Við erum því í nokkur ár búin að vera að eyða peningum í óþarfa!

Einnig eru reknir tveir tónlistarskólar. Í sveitarfélagi með um 4.000 íbúa er það óvenjulegt. Þar er einnig tækifæri til sameiningar sem gæti skilað hagræðingu og má jafnvel færa rök fyrir því að námið yrði skilvirkara og betra.

Við sameiningu árið 2018 varð eðlilega til tvöföldun á ýmsum rekstrarþáttum. Það er því mikilvægt að við förum að reka sveitarfélagið eins og eina heild – einfalda kerfið, nýta fjármuni betur og skila þeim ávinningi til íbúa.

Ég geri mér fulla grein fyrir því að slíkar ákvarðanir geta haft áhrif á daglegt líf íbúa. Þess vegna er mikilvægt að vinna slíkar breytingar í eins mikilli sátt og mögulegt er. En ef við ætlum að taka stór skref fram á við þarf að taka stórar – og stundum erfiðar – ákvarðanir.

Lækkum álögur. Nýtum tækifærin. Klárum sameininguna.

Áfram Suðurnesjabær.

Daði Bergþórsson

oddviti Miðflokksins í Suðurnesjabæ