Keflavíkurhraðlestin út af teinunum og komin í sumarfrí
Keflavíkurhraðlestin fór út af teinunum í lokaleikhlutanum gegn Val á Hlíðarenda í fimmta leik liðanna og er komin í sumarfrí. Valur vann 90-76 og er komið í undanúrslit.
Leikurinn var í járnum eftir þrjá leikhluta þar sem Keflvíkingar unnu leikhluta 1 og 3 en Valsmenn annan leikhluta.
Heimamenn í Val voru miklu betri í lokaleikhlutanum þar sem Frank Booker fór mikinn og skoraði hverja körfuna á fætur annarri og endaði með 29 stig. Þá var Antonio Woods Keflvíkingum mjög erfiður. Bítlabæjarliðið var ískalt, með Remy Martin á 4 villum og ekkert gekk í sókninni. Valsmenn sigu framúr og í lokin var munurinn fjórtán stig, 90-74. Keflvíkingar eru komnir í sumarfrí eins og Njarðvíkingar. Valsmenn fá annað Suðurnesjalið í undanúrslitum þegar þeir mæta Grindvíkingum.
Remy Martin var drjúgur í fyrri hálfleik og framan af þriðja leikhluta og skoraði 23 stig en eftir að hann fékk 4. villuna var hann ekki vel tengdur og hefði verið betur geymdur á bekknum. Mirza Bulic skoraði 21 stig og var besti maður liðsins.
Þegar frammistaða Keflvíkinga er skoðuð eftir tímabilið er ljóst að innkoma Remy Martin strax eftir áramót skilaði ekki því sem margir vonuðust eftir. Það sýndi sig líka að heimavöllurinn er mikilvægur sem Valsmenn nýttu sér í þessu einvígi sem var þrátt fyrir fjórtán stiga sigur í lokaleiknum skemmtilegt og spennandi.
Valur-Keflavík 90-76 (17-22, 27-16, 21-25, 25-13)
Valur: Frank Aron Booker 29/5 fráköst, Antonio Keyshawn Woods 23/6 fráköst/6 stoðsendingar, Callum Reese Lawson 13/5 fráköst, Kristófer Acox 9/10 fráköst, Kári Jónsson 7, Lazar Nikolic 6/9 fráköst, Hjálmar Stefánsson 3, Igor Maric 0, Karl Kristján Sigurðarson 0, Orri Már Svavarsson 0, Veigar Örn Svavarsson 0, Ástþór Atli Svalason 0.
Keflavík: Remy Martin 23/5 stoðsendingar, Mirza Bulic 21/8 fráköst, Egor Koulechov 16/10 fráköst, Craig Edward Moller 7/10 fráköst, Hilmar Pétursson 6, Halldór Garðar Hermannsson 3, Ólafur Björn Gunnlaugsson 0, Eyþór Lár Bárðarson 0, Jaka Brodnik 0/5 fráköst, Frosti Sigurðarson 0, Jakob Máni Magnússon 0, Nikola Orelj 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Bjarki Þór Davíðsson, Jóhannes Páll Friðriksson
Áhorfendur: 1983
Viðureign: 3-2





