SSS Uppb.sjó
SSS Uppb.sjó

Aðsent

Framtíð Reykjanesbæjar byggir á ungu fólki
Mánudagur 20. apríl 2026 kl. 09:29

Framtíð Reykjanesbæjar byggir á ungu fólki

Árangur á kjörtímabilinu sýnir skýra stefnu – Höldum áfram

Sterkari grunnur fyrir ungt fólk

Á undanförnum árum höfum við lagt aukna og markvissa áherslu á málefni barna og ungmenna í bænum okkar. Í starfi mínu sem þroskaþjálfi í fjölbrautaskóla og sem faðir sé ég daglega hversu miklu máli það skiptir að samfélagið standi þétt við bakið á ungu fólki, með raunverulegum aðgerðum en ekki aðeins í orði.

Á þessu kjörtímabili höfum við sýnt að við fylgjum stefnu okkar eftir með kröftugri uppbyggingu. Við höfum opnað þrjár nýjar félagsmiðstöðvar í grunnskólum bæjarins og árangurinn leynir sér ekki. Aðsókn ungmenna hefur aukist um heil 44% á skömmum tíma. Það staðfestir að við erum að mæta raunverulegri þörf fyrir öruggt og uppbyggilegt umhverfi eftir skóla. Mikilvægt er að halda áfram á þessari braut.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Hlýjan – stuðningur þegar mest þarf

Eitt af okkar mikilvægustu skrefum á kjörtímabilinu var að setja á laggirnar Hlýjuna, úrræði sem Reykjanesbær hefur þróað til að styðja við ungmenni. Þar fá ungmenni á aldrinum 13 til 18 ára gjaldfrjálsa og einstaklingsmiðaða ráðgjöf þar sem áhersla er lögð á hlustun og stuðning. Það sem gerir þetta úrræði einstakt er að ungmenni þurfa ekki tilvísun til að sækja þjónustuna. Með því höfum við lækkað þröskuldinn verulega og gert þeim auðveldara að leita sér aðstoðar á eigin forsendum.

Tækifæri fyrir öll 

Jafnframt höfum við hækkað frístundastyrki í Reykjanesbæ, sem skiptir fjölskyldur auðvitað miklu máli. Með því tryggjum við börnum og ungmennum raunhæfan aðgang að íþróttum og tómstundastarfi, óháð efnahag. Þetta er lykilatriði í því að styrkja grunnstoðir fjölskyldna í bænum og tryggja jöfn tækifæri fyrir öll.

Við höfum einnig styrkt skólastarf og tómstundir á kjörtímabilinu. Þetta eru grunnstoðir í lífi barna og fjölskyldna og fjárfestingar sem skila sér margfaldlega til baka í sterkari einstaklingum og heilbrigðara samfélagi. Ljóst er að við þurfum að halda áfram að efla þjónustu við ungt fólk og tryggja jafnt aðgengi að tómstundum og stuðningi, óháð aðstæðum. Mikilvægt er að halda áfram uppbyggingu félagsmiðstöðva og þróa starf þeirra í takt við breyttar þarfir ungmenna.

Reynslan af opnun þriggja nýrra félagsmiðstöðva í grunnskólum bæjarins á þessu kjörtímabili sýnir að við erum á réttri leið. Næstu skref eru að fjölga þeim og efla samstarf við fagfólk sem starfar á þessu sviði. Þrátt fyrir þennan góða árangur vitum við líka að verkefnin eru fleiri. Við munum því einnig beina sjónum okkar að þeim.

Við viljum huga betur að ungmennum 16 ára og eldri og styrkja atvinnumöguleika ungs fólks, enda á það ekki að vera þrautin þyngri að fá sumarstarf. Þá munum við halda áfram að leggja áherslu á andlega heilsu og efla samstarf skóla, fjölskyldna og fagfólks til að tryggja að stuðningur berist snemma og örugglega.

Ábyrgð okkar allra

Framtíð Reykjanesbæjar byggir á ungu fólki. Ábyrgð okkar er að skapa aðstæður þar sem þau geta blómstrað í námi, félagslífi og daglegu lífi. Það krefst áframhaldandi uppbyggingar, skýrrar forgangsröðunar og þess að við stöndum við þau markmið sem við setjum okkur.

Fjárfesting í ungu fólki er fjárfesting í framtíð bæjarins. Með því að hlúa að þeim í dag, tryggjum við öflugt og heilbrigðara samfélag fyrir okkur öll á morgun.

Magnús Einþór Áskelsson,
þroskaþjálfi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, fulltrúi í lýðheilsuráði og íþrótta- og tómstundaráði Reykjanesbæjar og skipar 9. sæti á lista Samfylkingarinnar í komandi bæjarstjórnarkosningum.