Langbest nýr matseðill
Langbest nýr matseðill

Fréttir

E-listinn í Vogum kynnir framboðslista sinn: Birgir Örn leiðir hópinn
Mánudagur 20. apríl 2026 kl. 09:36

E-listinn í Vogum kynnir framboðslista sinn: Birgir Örn leiðir hópinn

E-listinn, listi fólksins í Vogum, hefur kynnt framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Birgir Örn Ólafsson, forseti bæjarstjórnar, skipar efsta sæti listans sem einkennist af blöndu af reynslumiklum bæjarfulltrúum og nýjum röddum úr samfélaginu.

Í tilkynningu frá framboðinu segir að í hópnum ríki mikil orka og gleði. Listinn er skipaður fólki sem hefur víðtæka reynslu af bæjarmálum, bæði úr bæjarstjórn og nefndarstarfi, auk starfsfólks sveitarfélagsins og einstaklinga úr ýmsum áttum atvinnulífsins.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Reynslan og ferskar raddir

Efstu þrjú sæti listans skipa núverandi bæjarfulltrúar þeir Birgir Örn Ólafsson, Eva Björk Jónsdóttir og Friðrik Valdimar Árnason. Þau hafa öll setið í bæjarstjórn á yfirstandandi kjörtímabili. Í fjórða sæti er Ingþór Guðmundsson, varabæjarfulltrúi og rekstrarstjóri.

Að sögn forsvarsmanna E-listans munu nýir einstaklingar á listanum færa framboðinu ferska sýn sem styður við reynsluboltana í hópnum. Markmið listans er skýrt: að standa vörð um sterka stöðu Sveitarfélagsins Voga og tryggja hagsæld bæjarins til framtíðar.

Fjölbreyttur hópur

Listinn endurspeglar breiddina í samfélaginu í Vogum, en þar má finna kennara, rafvirkja, leikskólaliða, forstjóra og flugumsjónarmann, svo eitthvað sé nefnt, segir jafnframt í tilkynningu.

Listi E-listans í heild sinni:

  1. Birgir Örn Ólafsson, deildarstjóri og forseti bæjarstjórnar

  2. Eva Björk Jónsdóttir, deildarstjóri og bæjarfulltrúi

  3. Friðrik Valdimar Árnason, teymisstjóri hleðslulausna og bæjarfulltrúi

  4. Ingþór Guðmundsson, rekstrarstjóri og varabæjarfulltrúi

  5. Inga Rut Hlöðversdóttir, kirkjuvörður og framkvæmdastjóri

  6. Adrian Krawczuk, rafvirki og starfsmaður félagsmiðstöðvar

  7. Gunnar Richter, deildarstjóri/sérfræðingur á fjármálasviði

  8. Linda Dögg Agnarsdóttir, leikskólaliði

  9. Alexandra Líf Ingþórsdóttir, starfsmaður leikskóla og íþróttamiðstöðvar

  10. Samúel Þórir Drengsson, verkamaður

  11. Logi Friðriksson, rafvirki

  12. Tinna Magnúsdóttir, grunnskólakennari

  13. Valdimar Pétursson, flugumsjónarmaður

  14. Þóra Bragadóttir, forstjóri