SSS Uppb.sjó
SSS Uppb.sjó

Aðsent

Hinkrið aðeins
Þriðjudagur 21. apríl 2026 kl. 09:37

Hinkrið aðeins

Það eru ákveðnar ákvarðanir sem rétt er að taka hratt. Aðrar krefjast meiri yfirvegunar. Uppbygging á Akademíureitnum í Reykjanesbæ fellur klárlega í seinni flokkinn.

Í stuttu máli er verið að taka eitt verðmætasta svæði bæjarins, sem gæti með réttri framtíðarsýn orðið eitt öflugasta íþrótta- og þjónustusvæði landsins, og breyta því í þétta blokkarbyggð með færri bílastæðum og þrengri umferð. Þetta er of stór og afdrifarík ákvörðun til að keyra í gegn á lokametrum kjörtímabils. Ég hvet því meirihlutann til að hinkra aðeins og leyfa bæjarbúum að kveða upp sinn dóm eftir fáeinar vikur í sveitarstjórnarkosningunum.

Aðalbros
Aðalbros

Vitneskja meðal bæjarbúa um fyrirhugaða uppbyggingu á Akademíureitnum virðist ekki vera almenn. Samkvæmt þeirri framtíðarsýn sem kynnt var á síðasta ári stendur til að byggja á annað hundrað íbúðir í fjölbýli á þessu litla svæði. Og á þeim teikningum sem hafa verið birtar er hvorki gert ráð fyrir góðu umferðarflæði né raunhæfum bílastæðum á svæðinu, þar sem þrengt verður að götum eða þeim lokað og byggt yfir bílastæðin. 

Undanfarið hefur verið byggður töluverður fjöldi af fjölbýlishúsum í Reykjanesbæ og núverandi meirihluti virðist sannfærður um að í bænum búi nær eingöngu fólk sem á þann draum heitastan að búa í fjölbýlishúsi, enda er nær einungis gert ráð fyrir uppbyggingu fjölbýla hér í bæ næsta áratuginn. Við höfum ítrekað gagnrýnt þessa einsleitu uppbyggingu, enda búum við í Reykjanesbæ en ekki Reykjavík. Þessi áform eru ekki aðeins úr takti við bæjarbrag Reykjanesbæjar, heldur vinna þau beinlínis gegn honum. Í stað þess að efla mannlíf á þessu lykilsvæði er verið að þrengja að því með þéttri og einsleitri byggð.

Akademíureiturinn er í hjarta bæjarfélagsins okkar þar sem eru miklir möguleikar að byggja upp fyrir íþróttir, menningu, tómstundir og þjónustu fyrir bæjarbúa og tryggja um leið greitt umferðarflæði um bæinn okkar hvort sem það sé gangandi, hjólandi, akandi eða með almenningssamgöngum. Þetta er reitur til að hafa skýra framtíðarsýn á til að byggja upp enn betri bæ. 

Nú þegar styttist í sveitarstjórnarkosningar virðist vera ætlun meirihlutans að keyra þetta verkefni í gegn áður en bæjarbúar fá tækifæri til að láta í sér heyra á kjördag.

Þegar um er að ræða jafn stórar og áhrifamiklar ákvarðanir og uppbyggingu heils hverfis á svona verðmætum reit, sem mun móta ásýnd og daglegt líf íbúa um ókomin ár, er eðlilegt og lýðræðislegt að gefa fólki færi á að taka afstöðu. 

Því finnst okkur rétt að hinkra aðeins, og leyfa bæjarbúum að velja framtíðarsýnina í kosningunum í vor.

Það er einföld og sanngjörn krafa að ákvarðanir sem þessar fái eðlilegt ferli og að bæjarbúar fái að hafa raunveruleg áhrif á þróun síns nærumhverfis. Boltinn er núna hjá meirihlutanum.

Vilhjálmur Árnason,

oddviti Sjálfstæðisflokksins

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir