Aðalbros
Aðalbros

Íþróttir

Keflavík tapaði í Hafnarfirði
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 20. apríl 2026 kl. 22:25

Keflavík tapaði í Hafnarfirði

Keflavík tapaði fyrir Haukum í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta í Hafnarfirði í kvöld. Lokatölur urðu 85-71.

Keflavíkurkonur náðu sér aldrei á strik gegn deildarmeisturunum og voru að elta allan tímann. Munurinn var ekki mikill í fyrri hálfleik og framan af þriðja leikhluta en Íslandsmeistararnir juku forskotið, kláruðu öruggan sigur og tóku forystu í einvíginu.

Miklu munaði að þær rauðu náðu að halda besta leikmanni Keflavíkur, Keishana Washington, algerlega niðri og hún átti sinn slakasta leik í vetur og skoraði aðeins 8 stig. Hún tók reyndar sex fráköst og gaf 8 stoðsendingar en það dugði skammt. Anna Lára Vignisdóttir átti hins vegar sinn besta leik í vetur og var stigahæst með 16 stig. Sara Rún var líka mjög öflug í sókn og vörn og fleiri komu inn en Haukakonur eru öflugar og til að vinna þær þarf Keflavík að gera betur.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Haukar-Keflavík 85-71 (24-16, 15-17, 25-20, 21-18)

Haukar: Amandine Justine Toi 34/5 stoðsendingar, Catherine Mosengo Masa 16/10 fráköst, Sigrún Björg Ólafsdóttir 10/11 fráköst/8 stoðsendingar, Tinna Guðrún Alexandersdóttir 8, Lovísa Björt Henningsdóttir 6, Þóra Kristín Jónsdóttir 5/7 fráköst, Sólrún Inga Gísladóttir 3, Agnes Jónudóttir 3, Ásdís Freyja Georgsdóttir 0, Ásta Margrét Jóhannesdóttir 0, Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir 0, Rósa Björk Pétursdóttir 0.

Keflavík: Anna Lára Vignisdóttir 16, Sara Rún Hinriksdóttir 14/17 fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 11/5 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 10, Keishana Washington 8/6 fráköst/8 stoðsendingar, Sofie Tryggedsson Preetzmann 5, Angelina Turmel 4/4 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 3, Katla Rún Garðarsdóttir 0, Bríet Sif Hinriksdóttir 0, Agnes María Svansdóttir 0, Eva Kristín Karlsdóttir 0.

Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Friðrik Árnason

Áhorfendur: 345

Viðureign: 1-0

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir