SSS Uppb.sjó
SSS Uppb.sjó

Fréttir

Yfir tvær milljónir króna til menningarverkefna í Suðurnesjabæ
Mánudagur 20. apríl 2026 kl. 16:15

Yfir tvær milljónir króna til menningarverkefna í Suðurnesjabæ

Ellefu verkefni hlutu styrk úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar við hátíðlega athöfn í Byggðasafninu á Garðskaga síðastliðinn föstudag. Alls var úthlutað rúmum tveimur milljónum króna til fjölbreyttra menningarverkefna sem munu auðga mannlíf í sveitarfélaginu á árinu.

Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir, formaður Ferða-, safna- og menningarráðs, stýrði dagskránni en nemendur úr tónlistarskólum bæjarins, þær Kristín Hrefna Ásmundsdóttir og Elísa Tan Doro-on, sáu um tónlistaratriði.

Aðalbros
Aðalbros
Fjölbreytt flóra verkefna

Alls bárust 17 umsóknir í sjóðinn að þessu sinni og endurspegla styrkveitingarnar mikla grósku. Meðal þeirra sem hlutu styrki eru íþróttafélögin Víðir og Reynir, sem bæði fagna 90 ára afmæli á árinu, ásamt Golfklúbbi Sandgerðis sem fagnar 40 ára afmæli.

Þá voru veittir styrkir til heimildamyndagerðar, tónleikahalds og sýninga, en hæsta einstaka styrkinn, 300.000 krónur, hlaut Kaffi Gola fyrir verkefnið „Leppalúði gengur aftur“.

Eftirtaldir aðilar hlutu styrk árið 2026:
  • Kaffi Gola: Leppalúði gengur aftur (300.000 kr.) og tónleikar (180.000 kr.)

  • Hilmar B. Bárðarson: Heimildamyndin „Ár í Miðhúsum“ (250.000 kr.)

  • Söngsveitin Víkingar: 30 ára starfstónleikar (250.000 kr.)

  • Byggðasafnið á Garðskaga: Fræðslusýning um almyrkva (200.000 kr.)

  • Hjalti Ö. Ólafsson: Ástarsaga í vitunum (200.000 kr.)

  • Sigurbjörg Hjálmarsdóttir: „Inn með gleði og frið“ (200.000 kr.) og tónlistarupptökur (200.000 kr.)

  • Golfklúbbur Sandgerðis: 40 ára afmælissýning (100.000 kr.)

  • Knattspyrnufélagið Reynir: 90 ára afmælissýning (100.000 kr.)

  • Knattspyrnufélagið Víðir: 90 ára afmælissýning (100.000 kr.)

Markmið Menningarsjóðs Suðurnesjabæjar er að efla menningarstarfsemi og hvetja einstaklinga og félagasamtök til virkrar þátttöku. Íbúar eru hvattir til að fylgjast með og njóta þeirra fjölmörgu viðburða sem fram undan eru á vegum styrkþega.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir