Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Íþróttir

Golftíðin hafin og vellir opnir - Hólmsvöllur opnar á sumardaginn fyrsta
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 21. apríl 2026 kl. 09:56

Golftíðin hafin og vellir opnir - Hólmsvöllur opnar á sumardaginn fyrsta

Þrír golfvellir af fjórum á Suðurnesjum eru að opna í vikunni eða hafa opnað. Grindvíkingar eru aðeins seinni til og eru að undirbúa völlinn fyrir opnun fljótlega.

Kirkjubólsvöllur í Sandgerði er reyndar opinn allt árið á sumarflatir en Kálfatjarnarvöllur á Vatnsleysuströnd hefur opnað og Hólmsvöllur í Leiru opnar á sumardaginn fyrsta.

Undanfarnar vikur hefur verið unnið markvisst að því að undirbúa Hólmsvöll en fyrsta mót Golfsambands Íslands verður um miðjan maí en þá mæta bestu kylfingar landsins og keppa á GSÍ mótaröðnni. 

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að taka vel á móti sumrinu í Leirunni og hjálpa vellinum að komast sem best af stað eftir veturinn. Með góðri umgengni frá upphafi leggjum við grunn að betri velli fyrir allt tímabilið,“ segir í frétt á heimasíðu Golfklúbbs Suðurnesja.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir