Nýjar grenndarstöðvar með bættri þjónustu og auknu flokkunarmagni
Vinnu við endurbætur á grenndarstöðvum sveitarfélaganna á Suðurnesjum er nú lokið og nýjar grenndarstöðvar verið teknar í gagnið. Stöðvarnar hafa fengið algjörlega nýtt útlit sem gerir aðgengi skýrara og notkun einfaldari.
„Markmiðið með breytingunum er að bæta þjónustu við íbúa og auka möguleika á flokkun úrgangs.
Níu flokkar í stað fjögurra
Ein stærsta breytingin felst í því að nú taka grenndarstöðvarnar við níu flokkum úrgangs í stað fjögurra áður. Þetta er veruleg framför sem gerir íbúum kleift að flokka meira af úrgangi nær heimili sínu. Með þessari breytingu má gera ráð fyrir að færri þurfi að fara með úrgang á móttökustöðvar Kölku sem sparar bæði tíma og fyrirhöfn,“ segir Davor Lucic, rekstrarstjóri Kölku en hann segir þessar breytingar hafa verið unnar í samvinnu við sveitarfélögin á Suðurnesjum
Þarfir íbúanna
Einnig hafa tvær grenndarstöðvar verið færðar til í Reykjanesbæ. Grenndarstöðin sem áður var við Stapabraut er nú staðsett við áningarstað á Fitjum. Þá hefur grenndarstöðin sem var við Hringbraut 125 í Keflavík verið flutt að Afreksbraut.
Betri árangur í flokkun
Að sögn Davors er með þessu stigið mikilvægt skref til að koma til móts við þarfir íbúanna og bæta árangur í flokkun – sem er forsenda þess að ganga lengra í átt að hringrásarhagkerfi.
Af hverju að breyta grenndarstöðvunum?
- Aukin þjónusta með fjölgun flokka.
- Smækkun íláta undir efni sem safnast hægt (t.d. málmar og gler).
- Ódýrari ílát sem taka minna pláss. Tíðari tæming.
- Stærri ílát undir pappa/pappírsefni og plast. Þau efni safnast hraðast.
- Fatagámar komnir á stöðvarnar. Samstarf við Rauða krossinn á Suðurnesjum.
- Grænir skátar með gáma undir skilagjaldsskyldar umbúðir.
- Rafhlöðum er nú safnað á grenndarstöðvum. Til skoðunar er að bæta við ílátum undir smáraftæki.
- Tekið er við kertavaxi og postulíni
Markmiðið er að stöðvarnar séu aðgengilegar og ódýrar í rekstri. Tæming smærri íláta fer vel saman við reglubundið eftirlit Kölku með stöðvunum. Ferðir nýtast og hvað allt annað en stóru gámana varðar erum við sjálfbjarga um tæmingar. Það styttir viðbragðstímann þegar ílát fyllast.
Breytingin ætti að geta fækkað eitthvað ferðum á endurvinnslustöðvar og stytt íbúum leiðirnar.







