Bítlabærinn má ekki gleymast
Reykjanesbær ber einstaka ímynd sem menningarbær. Bítlabærinn mótaði tónlistararfleifð og menningarlíf Keflavíkur á sínum tíma og hefur nafnið fylgt Reykjanesbæ frá stofnun sveitarfélagsins. Bítlabærinn er ekki bara minning um tónlistarmenningu bæjarins, heldur tækifæri. Í Reykjanesbæ búum við að ríkri sögu, öflugu listalífi og miklum mannauði en staðsetning okkar nálægt höfuðborgarsvæðinu skapar ákveðna áskorun fyrir menningarlíf á svæðinu. Fólk sækir oft í menningarviðburði í höfuðborginni vegna þess að þar er framboðið meira og sýnilegra.
Þess vegna er mikilvægt að efla markvisst menningarlíf í heimabæ. Það snýst ekki einungis um fleiri og stærri viðburði heldur um að skapa vettvang þar sem listafólk færi tækifæri til að vaxa og dafna, börn og ungmenni fá að njóta og taka þátt og íbúar fyllast stolti af sínum heimabæ.
Öflugt menningarlíf styrkir samfélagið á öllum sviðum. Það mótar ímynd bæjarins og eykur aðdráttarafl hans. Menning á ekki að vera eitthvað sem við sækjum annað heldur á hún að blómstra í okkar heimabæ - Bítlabænum.
Brynja Ýr Júlíusdóttir
Höfundur skipar 10. sæti á lista Viðreisnar í Reykjanesbæ.






