Meiri jákvæðni, meira hugrekki
Kæru íbúar Suðurnesjabæjar.
Ég ákvað að þiggja boð S-lista Samfylkingarinnar og óháðra í Suðurnesjabæ um að taka 3. sæti listans í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fara fram þann 16. maí næstkomandi.
Ástæðan er einföld. Mig langar til þess að leggja mitt af mörkum í þágu samfélagsins sem ég bý í. Ég tel mig geta orðið góðan liðsfélaga í góðum hópi sem einsetur sér að efla sveitarfélagið m.a. með því að styrkja atvinnuuppbyggingu, fjölga lóðum og ekki hvað síst gera Suðurnesjabæ að enn betra, fjölbreyttara og eftirsóknarverðara samfélagi til að búa í.
Þegar við veltum því fyrir okkur hvað gerir samfélag gott þá liggur svarið oft í „litlu“ hlutunum en oft eru það þeir sem skipta fólkið mestu máli. Þetta eru þættir á borð við sorphirðu og snjómokstur sem fólk vill hafa í lagi en atriði sem snúa að velferðinni vega þó þungt og ef til vill þyngst. Við viljum öll að hlúið sé vel að börnum og eldri borgurum, að stuðningur við leik- og grunnskóla sé mikill og að öllum sé tryggð öflug félagsþjónusta.
Ég hef búið Garðsmegin í Suðurnesjabæ síðastliðin fjögur ár og hef orðið var við þann „ágreining“ sem hefur einkennt sveitarfélagið undanfarin ár. Ég á erfitt með að staðsetja mig í þessum ágreiningi og mér finnst fólk stundum hlaupa á sig að ástæðulausu. Þetta er einnig hluti af því að ég vil taka þátt í sveitarstjórnarmálunum í Suðurnesjabæ en ég vil meiri jákvæðni og hugrekki til ákvörðunartöku.
Ég er nýr í stjórnmálum að því leyti að ég hef í raun ekki verið virkur í stjórnmálastarfi. Ég hef hins vegar alltaf haft mjög skýrar pólitískar skoðanir og hef alltaf litið á mig sem jafnaðarmann (krata) og verið flokksbundinn Samfylkingarmaður frá stofnun hennar. Fyrir mér snúast stjórnmál um að setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum. Ég tel mikilvægt að nýta krafta markaðarins í þágu almennings og gera fólki auðveldara að byggja upp atvinnu og framtíð, til dæmis að stofna fyrirtæki. Samhliða öllu þarf að tryggja sterkt velferðarkerfi sem grípur þá sem þurfa á stuðningi að halda. Mér finnst mikilvægt að við berum ábyrgð hvert á öðru sem samfélag.
Ég mun leggja allt mitt af mörkum á þessum vettvangi ef þið veitið mér traust og brautargengi þann 16. maí næstkomandi.
Egill Rúnar Sigurðsson
Ökukennari hjá Ökuskóla S.G. og stjórnmálafræðingur að mennt.
Skipar 3. sæti S-listans í Suðurnesjabæ







