Aðalbros
Aðalbros

Aðsent

Opið bréf til frambjóðenda í Suðurnesjabæ
Föstudagur 24. apríl 2026 kl. 09:32

Opið bréf til frambjóðenda í Suðurnesjabæ

Kæru frambjóðendur

Suðurnesjabær er miðlungssveitarfélag þegar kemur að íbúafjölda og situr í 15. sæti af 62 sveitarfélögum á Íslandi. Það er því eðlileg krafa að hér sé rekin öflug og ábyrg þjónusta þar sem íbúar fá raunverulegt virði fyrir sitt fé.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Við sem bjóðum okkur fram eigum að vera sammála um eitt: við erum hér til að vinna fyrir íbúana – ekki fyrir pólitísk kerfi eða hefðir sem hafa þróast með tímanum.

Hefðbundin skipting í meirihluta og minnihluta hefur lengi verið við lýði. En við verðum að spyrja okkur hreinskilnislega: Þjónar hún íbúunum eins vel og hún gæti? Eða er hún orðin hluti af vandanum?

Við teljum að íbúar Suðurnesjabæjar vilji sjá meira samstarf á milli kjörinna fulltrúa. Minni skotgrafir, meiri samvinna. Minni áherslu á hver er í meirihluta – meiri áherslu á hvaða lausnir virka best.

Við vitum öll að ágreiningur mun alltaf vera til staðar – og á að vera það. En það er val hvernig við vinnum úr honum. Veljum við að festa okkur í blokkum eða að vinna saman að lausnum?

Það sem sameinar okkur er meira en það sem skilur okkur að. Við viljum öll:

  • góða þjónustu fyrir íbúa

  • skynsemi í fjármálum

  • samfélag sem virkar vel í daglegu lífi

Spurningin er því ekki hvort við séum sammála um markmiðin – heldur hvernig við veljum að vinna saman að þeim.

Gæti verið tækifæri til að þróa vinnubrögðin?

Gæti verið mögulegt að leggja meiri áherslu á samvinnu, opið samtal og sameiginlegar lausnir – frekar en hefðbundna skiptingu í blokkir?

Það þarf ekki að þýða að skoðanir hverfi eða að ágreiningur sé ekki til staðar. Þvert á móti getur fjölbreytni í sjónarmiðum styrkt ákvarðanatöku – ef unnið er í trausti og virðingu.

Þess vegna leggur Miðflokkurinn til að þeir frambjóðendur sem ná kjöri til bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar næstu fjögur árin taki samtalið eftir kosningar 16. maí og skoði í sameiningu hvort grundvöllur sé fyrir aukinni samvinnu og nýjum vinnubrögðum – þar sem hagsmunir íbúa eru alltaf í forgrunni.

Íbúarnir eiga betra skilið en gamla mynstrið.

Frambjóðendur Miðflokksins í Suðurnesjabæ

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir