Njarðvíkurkonur í vandræðum - 0-2 undir gegn UMFG
Njarðvíkurkonur eru komnar upp við vegg í einvíginu við Grindavík í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta eftir öflugan sigur UMFG á heimavelli í kvöld. Lokatölur 94-75 og staðan 0-2 fyrir UMFG.
Þær grindvísku gáfu tóninn strax í fyrsta leikhluta með baráttu og góðum leik og leiddu með ellefu stigum að honum loknum, 23-12. Þær héldu áfram að auka við forskotið sem var orðið átján stig í hálfleik, 45-27.
Njarðvíkurliðið kom ákveðið til leiks í upphafi þriðja leikhluta og minnkaði muninn í tvö stig eftir en þá sögðu þær grindvísku hingað og ekki lengra og sigu fram úr og unnu sannfærandi og öruggan nítján stiga sigur 94-75. Staðan 0-2 og Njarðvíkingar eru í vandræðum en næsti leikur liðanna verður á mánudag.
Abby Beeman leiddi lið Grindvíkinga með 24 stig og gaf 15 stoðsendingar. Henni til hjálpar voru Ellen Nystrom með 18 stig, Farhiya Abdi skoraði 15 stig og Isabella Ósk Sigurðardóttir, átti mjög góðan leik í vörn og sókn, skoraði 13 stig og tók 11 fráköst. Breiddin sterk hjá UMFG.
Paulina Hersler lék vel hjá Njarðvík og skoraði 17 stig en þær Danielle Rodriguez og Brittany Dinkins voru báðar með 16 stig og hafa báðar leikið betur eins og allt Njarðvíkurliðið.
Grindavík-Njarðvík 94-75 (23-12, 22-15, 19-29, 30-19)
Grindavík: Abby Claire Beeman 24/15 stoðsendingar, Ellen Nystrom 18, Farhiya Abdi 17/5 stoðsendingar, Isabella Ósk Sigurðardóttir 16/13 fráköst, Þórey Tea Þorleifsdóttir 11, Emilie Sofie Hesseldal 8/9 fráköst, Ólöf Rún Óladóttir 0, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0, Ólöf María Bergvinsdóttir 0, María Sóldís Eiríksdóttir 0, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, Telma Hrönn Loftsdóttir 0.
Njarðvík: Paulina Hersler 17/5 fráköst, Brittany Dinkins 16/12 fráköst/7 stoðsendingar, Danielle Victoria Rodriguez 16/4 fráköst, Sofia Roma 10/4 fráköst, Krista Gló Magnúsdóttir 9, Helena Rafnsdóttir 5, Hulda María Agnarsdóttir 2, Helga Jara Bjarnadóttir 0, Inga Lea Ingadóttir 0, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Sara Björk Logadóttir 0, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0.
Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Jón Þór Eyþórsson, Ingi Björn Jónsson
Áhorfendur: 176
Viðureign: 0-2







