Landhelgisgæslan 21-28. apríl
Landhelgisgæslan 21-28. apríl

Íþróttir

Gummi bjartsýnn á að Grindavík vinni titilinn
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 23. apríl 2026 kl. 06:36

Gummi bjartsýnn á að Grindavík vinni titilinn

„Þetta er auðvitað einn af hápunktum körfuboltaferilsins,“ segir Grindvíkingurinn Guðmundur Bragason, fyrrverandi leikmaður og þjálfari körfuboltaliðs UMFG, þegar hann lítur til baka til vorsins 1996 en þá tryggðu Grindvíkingar sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn eftir æsispennandi einvígi við Keflvíkinga sem lauk með sigri UMFG í fimmtu viðureigninni í Íþróttahúsi Keflavíkur.

Grindvíkingar höfðu verið bikarmeistarar árið áður en Guðmundur var spilandi þjálfari tveimur árum áður. Hann ákvað hins vegar að láta þjálfunina af hendi til Njarðvíkingsins Friðriks Inga Rúnarssonar til að geta einbeitt sér betur að því að spila og Frikki stýrði UMFG til bikarmeistaratitils 1995 og gerði þá að Íslandsmeisturum 1996.

Aðalbros
Aðalbros

Sérstök sería gegn Keflavík

Úrslitaserían gegn Keflavík var mjög sérstök en í öll fimm skiptin sem liðin mættust vannst leikurinn á útivelli. Keflavík vann tvo leiki í Grindavík en Grindvíkingar unnu alla þrjá leikina í Keflavík, þar á meðal lokaleikinn sem tryggði þeim titilinn fyrir fullu íþróttahúsi.

Guðmundur nefnir að liðið hafi verið ungt og efnilegt. Hann segist hafa fengið bræðurna Brynjar og Hjört Harðarsyni til Grindavíkur. Hjörtur hafði lítið fengið að spila í erfiðri samkeppni hjá stórliði Keflavíkur á þeim tíma en blómstraði í liði Grindavíkur og átti stórleiki í úrslitakeppninni. Þá var bandaríski leikmaðurinn Rodney Dobart afar mikilvægur eftir að hann kom til liðsins eftir áramót og fór á kostum í úrslitaleiknum.

Færri útlendinga

Aðspurður um stöðu körfuboltans í dag og fjölda erlendra leikmanna, segist Guðmundur ekki vera ánægður með þá stöðu. „Mér finnst þetta bara allt of mikið,“ segir hann. Guðmundur bendir á að árið 1996 hafi aðeins verið einn bandarískur leikmaður í hverju liði en samt hafi verið troðfullt hús og frábær stemning. Hann telur að núverandi fyrirkomulag komi í veg fyrir að ungir strákar fái séns á að blómstra.

Bjartsýnn fyrir hönd sinna manna

Guðmundur fylgist enn vel með boltanum en synir hans tveir, Bragi Guðmundsson og Ingvi Þór Guðmundsson, spiluðu báðir með Ármanni í vetur þar sem Bragi var stigahæsti Íslendingur deildarinnar. Bragi var í Grindavík í fyrra en Ingvi kom aftur á gólfið eftir að hafa jafnað sig eftir höfuðmeiðsl og stóð sig líka mjög vel hjá nýliðum Ármanns sem héldu sér í deildinni.

Varðandi möguleika Grindavíkur í úrslitakeppninni í ár er Guðmundur bjartsýnn. Grindavík er eina Suðurnesjaliðið sem eftir er í undanúrslitum og telur Guðmundur að heimavallarrétturinn muni hjálpa mikið. „Ég er bara bjartsýnn á að Grindavík fagni titli á þessu 30 ára afmæli,“ sagði Gummi Braga sem fylgist vel með sínum mönnum úr Grindavík.

Úrklippa úr umfjöllun Víkurfrétta þegar UMFG varð Íslandsmeistari 1996.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir