Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Viðskipti

Bílbót bauð í fertugsafmæli
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 25. apríl 2026 kl. 06:21

Bílbót bauð í fertugsafmæli

Bílasprautunar- og réttingaverkstæðið Bílbót fagnaði fjörutíu ára afmæli í janúar sl. en fyrirtækið var stofnað af þeim bræðrum Ólafi og Halldóri Inga Sigurjónssonum og ráku þeir það til 2007 þegar  frændurnir Henning Ólafsson og Rúnar Ingibergsson keyptu það af þeim og hafa rekið síðan.

„Við erum elsta starfandi fyrirtæki í þessum geira á Suðurnesjum og örugglega eitt það elsta á landinu. Reksturinn gengur vel en auðvitað hefur stundum verið mótvindur á þessum fjórum áratugum en hér erum við enn og hvergi nærri hættir,“ sögðu þeir félagar Henning og Rúnar en þeir buðu ásamt konum sínum, þeim Sólveigu Skjaldardóttur og Sigríði Ölmu Ómarsdóttur til afmælisveislu síðasta föstudag í tilefni þessa stóra áfanga.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Bílbót hefur alla tíð verið að Bolafæti 3, er í dag í 600 fm verkstæðishúsnæði og hefur farið í gegnum þrjár stækkanir á þessum fjörutíu árum, síðast árið 2018, þar sem 200 fm viðbygging var byggð aftan við húsið en þar fara bílrúðuskipti fram. „Við settum þar líka inn nýjan málningarklefa sem er bylting frá því sem var áður en þessi nýi er hitaður með vatni í stað olíu sem var orkugjafinn áður og er með fullkomnustu síun á lofti sem er í boði í dag sem gerir það að verkum að það er sama og engin mengun af málun hjá okkur,“ segja þeir frændur og aðspurðir um hvort frekari stækkun á húsnæði liggi fyrir svöruðu þeir því að það stæði ekki til.

Ein skemmtileg staðreynd í söguni er að á þessum tæpu 40 árum sem hafa einungis 19 starfsmenn unnið hjá Bílbót að frátöldum eigendum sem er ótrúlega lítil starfsmannavelta á þessum langa tíma.

Á annað hundrað manns mættu og samfögnuðu eigendum á þessum merku tímamótum í sögu fyrirtækisins og gerðu sér glaðan dag undir ljúfum tónum tónlistardúetts sem gerði garðinn frægan undir merkjum Sóldaggar á árum áður.

Hér að neðan má sjá myndir úr afmælisfjörinu hjá Bílbót.

Bílbót 40 ára

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir