Landhelgisgæslan 21-28. apríl
Landhelgisgæslan 21-28. apríl

Aðsent

Vegna umræðu um Vatnsveitu Sandgerðis
Laugardagur 25. apríl 2026 kl. 12:47

Vegna umræðu um Vatnsveitu Sandgerðis

Vatnsveita Sandgerðis er í eigu Suðurnesjabæjar og gegnir því hlutverki að miðla köldu neysluvatni til fasteignaeigenda í Sandgerði. Vatnsveitan kaupir kalda vatnið af HS Veitum og miðlar því áfram.

Vatnsveita Sandgerðis hefur verið óhagkvæm rekstareining og töluvert skuldsett. Vatnsgjaldið undanfarin ár hefur staðið að mestu undir rekstri veitunnar en ekki viðhaldsþörf, í raun þyrfti að hækka gjaldið til þess að koma til móts við það töluverða viðhald sem framundan er.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Núverandi meirihluti bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar hefur haft augljósan vilja til þess að leita leiða til að jafna vatnsgjald milli byggðarlaganna. HS Veitur reka vatnsveituna í Garði en Suðurnesjabær vatnsveituna í Sandgerði. Vatnsgjald HS Veitna er lægra en mögulegt er að hafa hjá vatnsveitu Suðurnesjabæjar. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að HS Veitur eru fagaðilar í umsjá og rekstri veitna og þar er ákveðin stærðarhagkvæmni til staðar. Vatnsgjald á samkvæmt lögum að standa undir rekstri og fjárfestingum vatnsveitna og því þarf að stilla vatnsgjald á viðkomandi notendur (fasteignaeigendur í Sandgerði í þessu tilfelli) af þannig að það standi undir þessum liðum. Fasteignaeigendur í Sandgerði eru því að borga talsvert hærra fyrir vatnsgjaldið heldur en eigendur sambærilegra fasteigna í Garði. Getur þar munað nokkrum tugum þúsunda á ársgrundvelli.

Ein leið til að jafna þessa gjaldtöku væri mögulega að semja við HS Veitur um að taka við eignarhaldi og rekstri vatnsveitu Suðurnesjabæjar, sem sagt að samruni eigi sér stað með þeim hætti að Suðurnesjabær eignist þá aukinn hlut í HS Veitum. Vinna fór af stað til að kanna möguleika á þessum kosti en málið hefur ekki farið lengra en það. En ekki var búið að verðmeta Vatnsveitu Sandgerðis í þeirri vinnu.

HS Veitur hf eru að meirihluta í eigu tveggja sveitarfélaga, Reykjanesbær á 50,1% hlut og Suðurnesjabær á 0,1% hlut. Samkvæmt lögum geta einkaaðilar ekki átt meirihluta í veitufyrirtækjum.

Sigursveinn Bjarni Jónsson,
formaður bæjarráðs Suðurnesjabæjar.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir