Er skessan að slá sér upp með kærasta?
Fær Skessan í hellinum félagsskap? Ráðið tekur vel í tillögu um tröllakarl
Gæti ástin verið í loftinu við smábátahöfnina í Keflavík? Menningar- og þjónusturáði Reykjanesbæjar hefur borist skemmtilegt erindi frá íbúa sem leggur til að bætt verði við öðru trölli í Skessuhelli.
Tillagan var tekin fyrir á 75. fundi ráðsins þann 24. apríl síðastliðinn. Þar kom fram að ráðið tekur vel í hugmyndina og mun hún nú fara í nánari skoðun.
Mörg tækifæri til þróunar
Skessan, sem flutti í hellinn sinn árið 2008 eftir að hafa verið sköpuð af Herdísi Egilsdóttur fyrir barnabókina um Siggu og Skessuna, hefur hingað til verið ein sín liðs. Ráðið segist sammála því að mörg tækifæri liggi í því að þróa hellinn og nágrenni hans enn frekar.
Hvort um verði að ræða „skessukarl“ eða hreinlega annan félaga fylgir ekki sögunni, en ljóst er að bæjaryfirvöld eru opin fyrir því að fjölga í tröllaættinni við höfnina.
Starfsemin í Duus heldur áfram
Á sama fundi var einnig rætt um þróun menningarmála almennt, en Skessuhellir er órjúfanlegur hluti af þeirri upplifun sem fjölskyldur njóta þegar þær heimsækja menningarmiðstöðina Duus og nágrenni.








