Svítur við Myllubakkaskóla fá ný hlutverk
Önnur á gervigrasið en hin við Ösp
Tvær svokallaðar „svítur“ eða færanlegar kennslustofur, sem verið hafa í notkun við Myllubakkaskóla, verða fluttar og nýttar undir aðra starfsemi á vegum sveitarfélagsins. Þetta var samþykkt á fundum bæjarráðs og stjórnar eignasjóðs Reykjanesbæjar þann 16. apríl síðastliðinn.
Málið var tekið fyrir í bæjarráði þar sem þeir Helgi Arnarson, sviðsstjóri menntasviðs, og Hreinn Ágúst Kristinsson, deildarstjóri eignaumsýslu, kynntu þarfagreiningu og rökstuðning fyrir áframhaldandi notkun þessara eininga. Bæjarráð samþykkti tillögurnar og fól eignaumsýslu að fylgja málinu eftir.
Stjórn eignasjóðs staðfesti í kjölfarið nýjar staðsetningar fyrir húsnæðið:
- Við Reykjaneshöll: Önnur svítan verður sett niður við gervigrasvöllinn við Reykjaneshöll þar sem hún mun nýtast íþróttastarfi á svæðinu.
- Við Brekkustíg: Hin svítan verður nýtt sem viðbótarhúsnæði við Ösp að Brekkustíg 11.
Samkvæmt ákvörðun stjórnar eignasjóðs verður flutningur og niðursetning eininganna kostaður af framkvæmdalykli Myllubakkaskóla. Tengingar á nýjum stöðum og annar tilfallandi kostnaður verður hins vegar greiddur af liðnum „ófyrirséður kostnaður“ hjá eignaumsýslu sveitarfélagsins.
Með þessari ráðstöfun er verið að endurnýta gott húsnæði sem ekki er lengur þörf fyrir við Myllubakkaskóla en getur bætt aðstöðu til muna á öðrum stöðum í bænum.








