Landhelgisgæslan 21-28. apríl
Landhelgisgæslan 21-28. apríl

Fréttir

Fjögur ný hringtorg á Njarðarbraut: Bergás sett í fyrsta forgang
Sunnudagur 26. apríl 2026 kl. 08:24

Fjögur ný hringtorg á Njarðarbraut: Bergás sett í fyrsta forgang

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt drög að nýju deiliskipulagi fyrir Njarðarbraut, á kaflanum milli Norður- og Suður- Fitja. Skipulagið gerir ráð fyrir miklum breytingum á gatnamótum og stígakerfi til að bæta umferðarflæði og öryggi á þessum annasama vegkafla.

Fulltrúar Eflu verkfræðistofu kynntu drögin fyrir ráðinu, en greining þeirra sýnir að skynsamlegasta úrlausnin sé að koma upp fjórum nýjum hringtorgum á Njarðarbraut: við Víknaveg, Vallarás, Bergás og Grænás. Þá er gert ráð fyrir að vinstri beygjur verði lagðar af við Bolafót og Sjávargötu og þess í stað verði þar svokölluð „hægri inn / hægri út“ tenging.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Áhersla á Ásahverfi og öryggi gangandi

Meirihluti ráðsins (B, S og Y-listi) fagnar skipulaginu en hefur ákveðið að breyta forgangsröðun framkvæmda frá tillögu Eflu. Meirihlutinn setur hringtorg við Bergás í efsta forgang ásamt nýrri gönguleið austan Njarðarbrautar og öruggri þverun yfir götuna.

„Meirihlutinn telur mikilvægt að bæta aðgengi Ásahverfis að Njarðarbrautinni og tryggja örugga þverun gangandi,“ segir í bókun meirihlutans. Í kjölfarið á hringtorginu við Bergás á að ráðast í gerð hringtorgs við Grænásveg ásamt undirgöngum í Grænásbrekku fyrir gangandi og hjólandi umferð.

Vill bráðabirgðahraðahindrun við Grænás

Meirihlutinn beindi því jafnframt til bæjarráðs að skoða kostnað við að setja upp hraðahindrun á Grænásvegi við Njarðarbraut til bráðabirgða. Þótt undirgöng séu lausn framtíðarinnar sé nauðsynlegt að bæta öryggi vegfarenda strax á þessum fjölförnu gatnamótum.

Sjálfstæðismenn sátu hjá

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins (D-listi) sátu hjá við afgreiðslu málsins. Þeir lýstu yfir stuðningi við að deiliskipuleggja götuna og voru í meginatriðum sammála tillögum Eflu, en töldu að áherslan ætti að vera önnur.

Í bókun minnihlutans kom fram að hann teldi mikilvægast að setja hringtorg við Grænás og Njarðarbraut í fyrsta forgang, ásamt því að hanna umferðaröryggisaðgerðir fyrir gangandi og hjólandi við Grænás og Fitjabakka strax í upphafi.

Málið var samþykkt með þremur atkvæðum meirihlutans gegn tveimur hjásetum minnihlutans. Ráðið hvetur til þess að framkvæmdir við þessar mikilvægu samgöngubætur hefjist hið fyrsta.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir