Örugg rými fyrir ungmenni í Reykjanesbæ
Andleg líðan ungmenna er eitt af þeim málefnum sem snertir okkur öll. Eins og staðan er í dag þá eru börn og ungmenni farin að finna fyrir meiri kvíða, depurð og einmanaleika. Það er hægt að ræða endalaust af hverju þessu þróun á sér stað. Hvort að það sé vegna aukinnar samfélagsmiðlanotkunar, skjátíma eða annara þátta. En er ekki kominn tími til að færa umræðuna yfir í það hvernig við ætlum að takast á við þetta?
Á vakt Framsóknar í Reykjanesbæ hefur margt jákvætt gerst á síðastliðnum árum þegar kemur að andlegri líðan barna og ungmenna. Félagsmiðstöðvum hefur fjölgað og úrræði eins og Hlýjan hefur verið sett á laggirnar. Þetta eru frábær skref fyrir samfélagið. Loksins er að fjölga stöðum þar sem ungmenni geta talað við fagaðila og fengið stuðning, hlýju og skilning, án þess að þurfa að grafa sjálf eftir upplýsingum um hvert þau geti leitað.
En þá veltir maður fyrir sér hvað við sem samfélag gert meira? Forvarnir og fræðsla eru oft nefnd sem lykilatriði. Að fræða ungmenni um skjátíma, samfélagsmiðla og hvað svefn er mikilvægur fyrir andlegu og líkamlegu heilsu okkar. En ef við erum hreinskilin þá vita flest ungmenni þetta nú þegar. Ég persónulega get sagt að ég hef oft hlustað á slíka fyrirlestra og stundum fara þeir einfaldlega inn um annað eyrað og út um hitt.
Þess vegna þurfum við að byrja að hugsa um þetta á annan hátt. Eitt af því mikilvægasta sem við getum gert er að halda áfram að byggja upp örugg rými fyrir ungmenni í Reykjanesbæ. Félagsmiðstöðvar og sambærileg úrræði eru ekki bara afþreying heldur líka forvörn. Þar myndast tengsl, traust og stuðningur sem skiptir raunverulegu máli. Með starfsemi þeirra eflist félagsfærni og félagsauður ungmenna sem er ein besta forvörnin gegn hverskyns vanlíðan og ofbeldi.
Það er á okkar ábyrgð sem samfélag að halda áfram að efla það sem þegar er byrjað á. Framsókn hefur alltaf verið með andlega heilsu barna og ungmenna að leiðarljósi og mun halda áfram að efla það flotta starf sem hefur nú þegar verið komið á lagnirnar, við megum ekki stoppa hér.
Þórarinn Darri Ólafsson
frambjóðandi Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar









