Ásbrú 20 ára: Frá tómum herstöðvarhúsum til nýsköpunar
Þegar herinn fór árið 2006 stóð eftir svæði fullt af byggingum sem enginn vissi hvað yrði um. Fáir sáu þá fyrir sér að þar myndi verða til samfélag nemenda, fjölskyldna og frumkvöðla.
Fjölskyldan mín var meðal fyrstu íbúa Ásbrúar. Ég var meðal fyrstu nemenda Háskólabrúar Keilis og síðar í fyrsta árgangi orku og umhverfistæknifræði á vegum Háskóla Íslands, sem kennd var á Ásbrú. Börnin mín voru meðal fyrstu nemenda Háaleitisskóla, leikskólans Vallar og Bryn Ballet Akademíunnar. Við vorum að byggja upp nýtt líf á sama tíma og svæðið sjálft fékk nýtt hlutverk.
Á Ásbrú kviknaði hugmyndin um að nýta kísil úr jarðhitavatni, efni sem fram að því hafði helst verið talið vandamál í virkjunum. Árið 2012 stofnuðum við GeoSilica og hófum rekstur í frumkvöðlasetri á Ásbrú. Nálægðin við skólann, aðgangur að efnafræðistofu og verkstæði og fólk sem trúði á nýsköpun gerðu okkur kleift að taka fyrstu skrefin.
Í dag vinnur GeoSilica með íslenskum orkufyrirtækjum og erlendum rannsóknaraðilum, og GeoStep® tæknin okkar hlaut nýlega verðlaun í Kísildalnum. Höfuðstöðvarnar eru enn á Suðurnesjum, og það er meðvituð ákvörðun.
Ásbrú mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta fjölskyldunnar okkar. Þar byggðum við okkur heimili, þar fæddist hugmyndin að GeoSilica og þar eiga rætur okkar enn heima. Tuttugu árum síðar heldur sagan áfram.
Til hamingju með 20 árin, Kadeco!
Fida Abu Libdeh,
stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica.






