Hvar er framtíðin?
Það eru ekki nema rétt um fimm mánuðir síðan frambjóðendur í sveitarstjórnarkosningunum töluðu flestir um að nú væri kominn tími til að sameina Suðurnesjabæ í raun – hætta þessu eilífa karpi á milli byggðakjarnanna og fara að gera þetta eins og „menn“.
En hvernig gerum við það? Er til ein rétt leið? Sennilega ekki, enda gerist það ekki á hverjum degi að tvö nánast jafnstór sveitarfélög sameinist í eitt, eins og í okkar tilfelli.
En eitt finnst mér ljóst: Ef við ætlum að ná raunverulegri sameiningu verðum við að fara að horfa lengra fram á veginn en til næstu fjárhagsáætlunar eða næsta kjörtímabils.
Við þurfum að spyrja okkur: Hvernig viljum við að Suðurnesjabær líti út eftir 20 eða 30 ár?
Miðjan, svæðið á milli Garðs og Sandgerðis, á að mínu mati að gegna lykilhlutverki í þeirri framtíðarsýn.
Það kann vel að vera dýrara til skemmri tíma að byggja nýja aðstöðu þar en að nýta mannvirki og innviði sem þegar eru til staðar í öðrum hvorum byggðakjarnanum. En ódýrasta lausnin í dag er ekki endilega hagkvæmasta lausnin þegar horft er 20 eða 30 ár fram í tímann.
Þetta á ekki eingöngu við um gervigrasvelli eða íþróttamannvirki.
Þegar kemur að stórum fjárfestingum framtíðarinnar – hvort sem það er yfirbyggð íþróttaaðstaða, skóli, leikskóli eða önnur sameiginleg þjónusta – eigum við alltaf að skoða alvarlega hvort Miðjan sé rétti staðurinn.
Við sameinuðum Garð og Sandgerði í eitt sveitarfélag. En raunveruleg sameining verður ekki eingöngu til á pappír. Hún verður til þegar við förum að hugsa um Suðurnesjabæ sem eitt samfélag.
Við getum ekki byggt tvennt af öllu.
Ef hugsunin verður alltaf sú að þegar eitthvað er byggt í öðrum kjarnanum þurfi sambærilegt mannvirki einnig að rísa í hinum, þá verður bæði erfitt og kostnaðarsamt að byggja upp eitt sterkt sveitarfélag. Þá er hætt við að gömlu sveitarfélagamörkin lifi áfram í hugsunarhættinum, þótt þau séu löngu horfin af kortinu.
Miðjan gefur okkur tækifæri til að gera hlutina öðruvísi.
Þar getum við smám saman byggt upp sameiginlega aðstöðu sem þjónar öllum íbúum sveitarfélagsins, óháð því hvoru megin við gömlu sveitarfélagamörkin þeir búa. Með góðum göngu- og hjólastígum, öruggum og betri samgöngum og skýrri langtímasýn getur Miðjan orðið raunverulegur tengipunktur Garðs og Sandgerðis.
Þetta gerist auðvitað ekki á einni nóttu. En við þurfum að ákveða hvert við ætlum.
Við eigum að ákveða hvað við viljum að verði í Miðjunni eftir 10, 20 og 30 ár og byggja síðan markvisst í átt að þeirri framtíð.
Stundum þarf að sætta sig við að framtíðarlausnin kosti meira í upphafi. Það getur samt verið mun skynsamlegra en að taka ódýrari ákvörðun í dag sem við sjáum eftir, eftir tíu eða tuttugu ár.
Við erum nefnilega ekki bara að byggja fyrir okkur sem búum hér í dag.
Við erum að byggja Suðurnesjabæ fyrir næstu kynslóðir líka.
Daði Bergþórsson
Oddviti Miðflokksins í Suðurnesjabæ.








