Meirihlutinn í Suðurnesjabæ fallinn
Meirihlutinn í Suðurnesjabæ er fallinn. Bergný Jóna Sævarsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, staðfestir þetta í samtali við mbl.is. Heimildir Víkurfrétta eru að Samfylking hafi slitið samstarfinu vegna trúnaðarbrests.
„Ætla ekki að tjá mig um stöðuna að svo stöddu,“ segir Haukur Andreasson, oddviti Sjálfstæðismanna og óháðra í svari við fyrirspurn Víkurfrétta nú undir kvöld.
Anton Guðmundsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks og óháðra, staðfestir einnig að meiri meirihlutinn sé fallinn en hann viti ekki ástæðuna.
Aðspurður hvort rætt hafi verið við hann segir Anton: „Nei, við Framsóknarmenn erum bara ad meðtaka tíðindin.“
Tilkynningar er að vænta frá Samfylkingu og óháðum, samkvæmt svari Svavars Grétarssonar, oddvita flokksins, við fyrirspurn Víkurfrétta.







