Suðurnes fá lægstu framlögin á íbúa til byggðaþróunar
SSS kallar eftir því að ríkið taki mið af fólksfjölgun og verkefnum sveitarfélaganna
Suðurnes fá lægstu framlög á hvern íbúa til atvinnu- og byggðaþróunar, samkvæmt gögnum sem Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, SSS, lagði fram á aðalfundi sínum á dögunum. Skorað er á ríkisvaldið að tryggja svæðinu sambærileg framlög og öðrum landshlutum til að mæta fólksfjölgun og sértækum verkefnum.
Framlag til byggðaþróunar nemur samkvæmt samanburði SSS 821 krónu á íbúa á Suðurnesjum, á móti 1.880 krónum á Vesturlandi og 5.777 krónum á Vestfjörðum. Til sóknaráætlunar eru tölurnar 3.017 krónur á íbúa á Suðurnesjum, 5.347 krónur á Vesturlandi og 14.231 króna á Vestfjörðum.
Íbúum fjölgað um 46% frá 2011
SSS setur samanburðinn í samhengi við öran vöxt svæðisins. Íbúar Suðurnesja voru 29.648 í desember 2025 og hafði þeim fjölgað um 46% frá árinu 2011. Í kynningu á fundinum er bent á að fólksfjölgunin kalli meðal annars á aukna skóla- og leikskólaþjónustu. Náttúruhamfarir í Grindavík og flutningur íbúa innan svæðisins hafi einnig mótað þróun undanfarinna ára.
Sambandið bendir jafnframt á hlut Suðurnesja í fleiri sjóðum. Á árunum 2020 til 2025 hafi 151 milljón króna af alls 3.873 milljónum úr Framkvæmdasjóði ferðamála runnið til svæðisins. Í kynningunni er því einnig haldið fram að fjöldi stöðugilda ríkisins sé lægstur á Suðurnesjum, en þar fylgir ekki nánari samanburður.






