Suðurnesjabær vill undirgöng fyrir gangandi og hjólandi
Framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar leggur áherslu á að tengingar göngu- og hjólastíga við fyrirhugaða tvöföldun Reykjanesbrautar milli Hafnavegar og Garðskagavegar verði fremur útfærðar með undirgöngum en göngubrúm.
Þetta kemur fram í afgreiðslu ráðsins á umsagnarbeiðni vegna umhverfismatsskýrslu Vegagerðarinnar. Ráðið vill jafnframt að hæðatakmarkanir á brautinni verði ekki þannig að þær takmarki umferð þungaflutninga.
Að öðru leyti gerir ráðið ekki athugasemdir við umhverfismat fyrirhugaðrar framkvæmdar.








