Ungmennahús í Vogum til reynslu í tvo mánuði
Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að hefja tveggja mánaða tilraun með ungmennahús í félagsmiðstöðinni fyrir ungmenni á aldrinum 16 til 18 ára.
Nefndin segir mikilvægt að aldurshópurinn hafi öruggan og uppbyggilegan stað til að hittast og taka þátt í starfi í sínu nærumhverfi. Verkefninu sé einnig ætlað að viðhalda tengslum sveitarfélagsins við ungmennin eftir að grunnskólagöngu lýkur.
Að reynslutímanum loknum verður verkefnið metið út frá þátttöku, reynslu starfsfólks og viðhorfum ungmennanna. Niðurstöðurnar verða lagðar fyrir nefndina áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið.






