Vegagerðin
Vegagerðin

Fréttir

Fyrirtæki í Grindavík fengu tæpar 179 milljónir í styrki
Föstudagur 2. október 2026 kl. 03:12

Fyrirtæki í Grindavík fengu tæpar 179 milljónir í styrki

SSS segir 47 fyrirtæki hafa fengið stuðning úr tveimur sjóðum

Fyrirtæki í Grindavík fengu samtals 178,9 milljónir króna í styrki samkvæmt yfirliti í aðalfundargögnum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, sem fundaði í Suðurnesjabæ á dögunum. Þar kemur fram að 14 fyrirtæki hafi fengið 48,5 milljónir króna úr viðbótarframlagi í Uppbyggingarsjóð og 33 fyrirtæki 130,4 milljónir úr Sóknarsjóði Byggðastofnunar.

Ráðgjöf samhliða styrkjum

Samkvæmt kynningu á fundi SSS voru 432 klukkustundir lagðar í stuðning og ráðgjöf verkefnastjóra SSS vegna Grindavíkur. Þá tóku 21 fyrirtæki þátt í upphafsfundi verkefnisins Grindavík – Saman í sókn, sem snýr að endurreisn og framtíðarmótun atvinnulífs bæjarins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Verkefnið er unnið í samstarfi Grindavíkurbæjar, Markaðsstofu Reykjaness og atvinnu- og byggðaþróunarsviðs SSS, með Íslenska ferðaklasann í framkvæmd. Í gögnunum kemur einnig fram að áhrif hamfaranna nái út fyrir Grindavík: aukin eftirspurn eftir húsnæði í nágrannasveitarfélögum hafi að mati SSS átt þátt í því að fasteignamat á Suðurnesjum hækkaði umfram landsmeðaltal.

Bílakjarninn
Bílakjarninn