Garðyrkjustjóra Reykjanesbæjar sagt upp
Starf garðyrkjustjóra Reykjanesbæjar verður lagt niður vegna skipulagsbreytinga hjá umhverfisdeild sveitarfélagsins. Berglind Ásgeirsdóttir, sem gegnt hefur starfinu, segist þar með ljúka rúmlega 18 ára starfsferli sínum hjá bænum.
Í skriflegu svari við fyrirspurn Víkurfrétta segir Hermann Nökkvi Gunnarsson, aðstoðarmaður bæjarstjóra Reykjanesbæjar, að ákveðið hafi verið í samráði við umbóta- og hagræðingarnefnd að ráðast í skipulagsbreytingar hjá umhverfisdeildinni. Niðurlagning starfs garðyrkjustjóra sé hluti þeirra breytinga.
„Ekki er gert ráð fyrir frekari uppsögnum í tengslum við þessar tilteknu breytingar,“ segir Hermann Nökkvi.
Berglind greinir frá starfslokunum í færslu á Facebook. Þar segir hún breytingarnar tengjast skipulagsbreytingum og hagræðingu hjá sveitarfélaginu og vera hluta af vinnu umbóta- og hagræðingarteymis Reykjanesbæjar, sem sett hafi verið á laggirnar í sumar.
Hún segir upplýsingar um breytingarnar hafa verið sendar starfsfólki sama dag og henni var tilkynnt um þær. Lítill tími hafi því gefist til að segja sínum nánustu og samstarfsfólki sjálf frá tíðindunum.
„Reykjanesbær er sveitarfélagið mitt og mér hefur alltaf þótt ótrúlega vænt um að fá að vinna fyrir það,“ skrifar Berglind.
Hún segist stolt af störfum sínum og þeim verkefnum sem hún hafi tekið þátt í og leitt í gegnum árin. Markmiðið hafi alltaf verið að leggja gott af mörkum og gera Reykjanesbæ grænni, fallegri og betri stað. Þá þakkar hún samstarfsfólki og öðrum sem hún hafi kynnst í starfinu.
„Það er auðvitað margt sem þarf að melta þegar svona kafla lýkur óvænt. En þegar ég horfi yfir þessi ár er ég fyrst og fremst stolt af því sem ég hef lagt af mörkum og geng frá þessum kafla með höfuðið hátt.“






