Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Hjördís Kristinsdóttir ráðin sviðsstjóri fjölskyldusviðs í Vogum
Miðvikudagur 30. september 2026 kl. 15:23

Hjördís Kristinsdóttir ráðin sviðsstjóri fjölskyldusviðs í Vogum

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum 29. september að ráða Hjördísi Kristinsdóttur í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs.

Hjördís hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri í mennta- og velferðarmálum. Hún var framkvæmdastjóri Hjálpræðishersins á Íslandi og sá þar um stefnumótun, rekstur, mannauðsmál og uppbyggingu þjónustu. Hún hefur einnig starfað í grunnskóla sem umsjónarkennari, sérkennari og deildarstjóri. Hjördís er með meistaragráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst, með áherslu á mannauðsstjórnun og verkefnastjórnun. Hún er einnig með B.Ed.-gráðu í grunnskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands og diplómu í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

„Við höfum metnað fyrir þjónustu sem fylgir íbúum í gegnum lífið, allt frá leikskóla til málefna eldri borgara. Fjölskyldusvið gegnir þar lykilhlutverki og það eru mikil tækifæri til að efla samstarf og tengja þjónustuna betur saman. Með reynslu Hjördísar af skólastarfi, velferðarmálum og stjórnun fáum við öflugan liðsmann til að vinna með okkur að þeim verkefnum. Ég býð hana hjartanlega velkomna og hlakka mikið til samstarfsins,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga.

Bílakjarninn
Bílakjarninn