Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Áforma að sameina lögregluna á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu
Miðvikudagur 30. september 2026 kl. 04:44

Áforma að sameina lögregluna á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu

Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum verður sameinað embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt fyrirhuguðum breytingum á skipulagi lögreglu. Starfsstöðvum á ekki að fækka og aðstoðarlögreglustjórar í hverju umdæmi eiga að tryggja nálægð við ákvörðunartöku.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur kynnt breytingarnar í lögregluráði og lagt minnisblað um þær fyrir ríkisstjórnina. Samkvæmt áformunum verður lögregluembættum landsins fækkað úr níu í þrjú og hlutverk ríkislögreglustjóra skýrt betur.

Fyrir Suðurnes þýða áformin að lögregluembættið verður hluti af stærra embætti á suðvesturhorninu. Nýja embættið mun jafnframt taka við heimferða- og fylgdadeild og farþegaupplýsingadeild frá ríkislögreglustjóra.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Í kynningu ráðuneytisins er lögð áhersla á að núverandi starfsstöðvar verði jafn margar og áður. Þjónusta og viðbragðsgeta lögreglu eigi að haldast sterk um allt land þótt embættum verði fækkað.

„Baráttan við skipulagða brotastarfsemi kallar á meiri sérhæfingu og sterkari liðsheildir,“ segir ráðherra. Með stærri embættum eigi að skapast betri forsendur til að byggja upp sérhæfða getu og nýta mannafla með markvissari hætti.

Auk sameiningarinnar á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu verða til tvö embætti á landsbyggðinni. Embættin á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vesturlandi og Vestfjörðum verða sameinuð í eitt. Embættin á Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum verða einnig sameinuð.

Starfandi lögreglustjórar munu njóta forgangs umfram aðra til að sækjast eftir nýju lögreglustjóraembættunum. Fái þeir ekki skipun verður þeim boðin staða aðstoðarlögreglustjóra. Þeim sem fara í hvorugt embætti verður tryggður lögbundinn biðlaunaréttur.

Ríkislögreglustjóri mun samkvæmt breyttu skipulagi fyrst og fremst sinna landsbundinni samhæfingu, sameiginlegri þjónustu, faglegri þróun og verkefnum sem þurfa að vera miðlæg. Ráðuneytið segir breytingarnar eiga að skýra ábyrgð, bæta eftirlit með störfum lögreglu og styrkja traust almennings.

Ekki kemur fram í kynningunni hvenær sameiningin á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu á að taka gildi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn