Fréttir

Vill undirbúning að næstu raforkutengingu áður en Suðurnesjalína 2 fyllist
Þriðjudagur 29. september 2026 kl. 09:28

Vill undirbúning að næstu raforkutengingu áður en Suðurnesjalína 2 fyllist

SSS kallar eftir greiningu á afl- og orkuþörf Suðurnesja fyrir 1. júní 2027

Undirbúningur að frekari styrkingu raforkuflutnings til og frá Suðurnesjum þarf að hefjast nú þegar, samkvæmt samþykktri ályktun aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Fundurinn skorar á ríkisstjórnina og Landsnet að skilgreina og tímasetja næsta áfanga í kerfisáætlun áður en sú flutningsgeta sem Suðurnesjalína 2 bætir við verður fullnýtt.

SSS segir Suðurnesjalínu 2, nýtt tengivirki á Njarðvíkurheiði og tengdar framkvæmdir mikilvæga styrkingu á afhendingaröryggi raforku. Sambandið telur þó fyrirséð að eftirspurn haldi áfram að aukast vegna atvinnuuppbyggingar, fólksfjölgunar og orkuskipta.

Krefjast greiningar til ársins 2040

Í ályktuninni er vísað til spár Landsnets um að raforkueftirspurn á Suðurnesjum geti tvöfaldast til ársins 2050. SSS bendir á uppbyggingaráform meðal annars á Ásbrú, við Keflavíkurflugvöll, í Helguvík og á Keilisnesi. Að mati sambandsins gæti ný flutningsgeta því nýst að verulegu leyti á skömmum tíma.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Fundurinn vill að Landsnet, stjórnvöld, sveitarfélögin og dreifiveita svæðisins vinni saman greiningu á afl- og orkuþörf til ársins 2040. Niðurstöður eigi að liggja fyrir eigi síðar en 1. júní 2027. Þar verði meðal annars metið hve mikil flutningsgeta verði í raun óráðstöfuð eftir tilkomu Suðurnesjalínu 2 og hvenær þurfi að hefja undirbúning frekari framkvæmda.

SSS leggur sérstaka áherslu á afhendingaröryggi vegna náttúruvár. Markmiðið eigi að vera fleiri en ein örugg flutningsleið raforku og hringtenging til allra sveitarfélaga á Suðurnesjum, þannig að ekkert þeirra verði háð einni leið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn