Nýtt met í frístundastarfi í Reykjanesbæ
26 prósenta aukning nemenda á einu ári.
Gríðarleg aukning hefur orðið í þátttöku barna í frístundaheimilum grunnskóla Reykjanesbæjar á þessu skólaári, en slegið var nýtt met í skráningum hjá nemendum í 1. til 4. bekk. Þetta kom fram í samantekt grunnskólafulltrúa sem kynnt var í menntaráði og tekin fyrir á síðasta fundi bæjarstjórnar.
Yfir 700 börn á frístundaheimilum
Í upphafi núverandi skólaárs eru alls 743 nemendur skráðir á frístundaheimili sveitarfélagsins, samanborið við 591 nemanda á sama tíma á síðasta skólaári. Er það um 26 prósenta aukning á milli ára.
Díana Hilmarsdóttir, bæjarfulltrúi minnihlutans, vakti athygli á þessum stóra áfanga og benti á að mikil eftirspurn kallaði á að taka þyrfti mið af þessum vexti við komandi fjárhagsáætlunargerð. Hún hvatti til þess að haldið yrði áfram að samþætta þjónustu frístundaheimila, félagsmiðstöðva og íþróttastarfs til að skapa samfelldan og öflugan skóladag fyrir börn og ungmenni.
Frístundaaksturinn slær í gegn
Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi minnihlutans, fagnaði sömuleiðis þessari þróun og þakkaði starfsfólki frístundaheimila fyrir öflugt og faglegt starf. Hún benti á að Reykjanesbær væri ungt sveitarfélag með mikinn fjölda barna og að frábærar viðtökur skýrðust ekki síst af góðri þjónustu og farsælli innleiðingu á frístundaakstri.
Með frístundaakstrinum eru börn sótt á frístundaheimilin og þeim ekið á æfingar hjá íþrótta- og æskulýðsfélögum í bænum þar sem foreldrar sækja þau síðar um daginn. Sú þjónusta hefur létt til muna á álagi hjá barnafjölskyldum og aukið til muna þátttöku barna í tómstundastarfi. Bæjarfulltrúar lýstu yfir ánægju með árangurinn og lögðu áherslu á að standa vörð um faglegt frístundastarf í bænum.






