Fréttir

Nýstofnuð Hagsmunasamtök íbúa á Ásbrú í samstarfi við Reykjanesbæ
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
sunnudaginn 27. september 2026 kl. 05:36

Nýstofnuð Hagsmunasamtök íbúa á Ásbrú í samstarfi við Reykjanesbæ

Fulltrúar nýstofnaðra Hagsmunasamtaka íbúa á Ásbrú mættu á síðasta fund umhverfis- og framkvæmdaráðs Reykjanesbæjar til að kynna samtökin og ræða helstu hagsmunamál hverfisins. Heimsóknin var tekin fyrir og rædd á síðasta fundi bæjarstjórnar þar sem bæjarfulltrúar úr öllum flokkum fögnuðu framtaki íbúa og sýndu samstarfinu mikinn velvilja.

Katrín og Berglind, formaður og varaformaður samtakanna, kynntu vel unnin gögn og óskuðu eftir samstarfi við sveitarfélagið um nokkur afmörkuð verkefni á Ásbrú. Meðal þess sem samtökin lögðu áherslu á var:

„Drop-off“ svæði við skólann: Úrbætur á losunarsvæði fyrir nemendur við skólann á Ásbrú til að tryggja öryggi barna og greiða úr umferð á morgnana, en samtökin kynntu heildstæða og hagkvæma lausn á því vandamáli.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Faglega ráðgjöf skrúðgarðyrkjufræðings: Að fá skrúðgarðyrkjufæðing sveitarfélagsins að láni til að leiðbeina sjálfboðaliðum úr hverfinu sem vilja ráðast í gróðursetningu og fegrun á svæðinu.

Upplýsingar um almenningssamgöngur: Að komið verði fyrir útprentuðum tímatöflum strætó á strætóskýlum í hverfinu til að bæta þjónustu við íbúa.

Fagna aukinni þátttöku og frumkvæði íbúa

Guðbergur Reynisson, formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs, og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúi lýstu yfir mikilli ánægju með heimsóknina á bæjarstjórnarfundinn. Halldóra Fríða benti á að íbúar á Ásbrú væru almennt mjög ánægðir með þær framkvæmdir sem þegar hefðu átt sér stað en að það væri mikilvægt að taka utan um þessi minni smáatriði sem upp á vantaði.

Bæjarfulltrúar lögðu áherslu á að stofnun hagsmunasamtaka af þessu tagi auðveldaði allt samtal milli bæjaryfirvalda og íbúa, sem gerði sveitarfélaginu kleift að bregðast hratt og vel við óskum um úrbætur í nærumhverfinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn