Fréttir

Grindavíkursaga 11 ára stelpu hlýtur barnabókaverðlaunin
Laugardagur 26. september 2026 kl. 05:41

Grindavíkursaga 11 ára stelpu hlýtur barnabókaverðlaunin

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026.

Frásögn ellefu ára gamallar stelpu úr Grindavík, Matthildar Yrsu Sigurðardóttur er efni verðlaunabókar íslensku barnabókaverðlaunanna 2026. Bókin heitir Síðasti dagurinn.

Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að dómnefnd hafði rýnt í keppnisgögn var hún sammála um að Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hlyti Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Matthildur Yrsa var ellefu ára þegar náttúruhamfarirnar í Grindavík, heimabæ hennar, hófust. Í bókinni segir hún sögu sína í samstarfi við verðlaunahöfundinn Þórunni Rakel Gylfadóttur, lýsir síðasta deginum í Grindavík, tilraunum til að lifa eðlilegu lífi þrátt fyrir að jörðin skylfi undir fótum hennar, fyrirvaralausum flótta fjölskyldunnar og afleiðingum þess að vera rifin upp með rótum á viðkvæmum aldri og þurfa að fóta sig í nýjum aðstæðum. Didda Flygenring, teiknari og grafískur hönnuður, myndlýsir söguna.

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars:

„Textinn er knappur og blátt áfram en einlæg rödd barnsins skín í gegn og gerir lesendum kleift að setja sig í spor Grindvíkinga. Með persónulegum teiknistíl og markvissri litanotkun fangar Didda Flygenring í senn skelfinguna sem fylgdi náttúruhamförunum sem og öryggið og hlýjuna sem ástrík fjölskyldan veitir á erfiðum tímum. Síðasti dagurinn er einstakt verk um þýðingu þess að eiga heimili, tilheyra samfélagi og upplifa öryggi, bók sem vekur samkennd og eykur skilning á málefnum sem varða okkur öll.“

Að Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaununum standa fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf og Forlagið, sem gefur sigurhandritið út á bók að keppni lokinni. Í dómnefnd sátu Anna Cynthia Leplar, Guðrún Lára Pétursdóttir og Sölvi Sveinsson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn