Fyrirtæki í Grindavík verða kölluð að næsta áfanga áhættumats
Öryggisþarfir fyrirtækja í Grindavík verða teknar sérstaklega fyrir í framhaldi vinnunnar við áhættumat bæjarins. Fulltrúar fyrirtækja verða kallaðir til samtals um viðbúnað, rýmingaráætlanir og hvaða verðmætum þurfi að forgangsraða ef nýr atburður verður.
Þetta kom fram í svari Dóru Hjálmarsdóttur verkfræðings í lok opins fundar um áhættumatið á þriðjudagskvöld. Hún sagði fyrsta áfanga vinnunnar hafa haft afmarkað umfang. Starfsmenn fyrirtækja hefðu þar verið metnir með öðrum sem dvelja í bænum, en starfsemi fyrirtækjanna og sérstakar þarfir þeirra yrðu skoðaðar nánar næst.
Margrét Kristín Pálsdóttir lögreglustjóri sagði fyrirtæki þurfa að hafa áætlanir um hvaða verðmætum yrði forgangsraðað ef aðgangur til björgunar yrði mögulegur eftir rýmingu. Slíkar áætlanir þyrftu að falla að ákvörðunum viðbragðsaðila og þeim aðstæðum sem upp kæmu hverju sinni.
Dóra sagði stefnt að því að kalla saman fulltrúa fyrirtækja, heyra hvaða öryggissjónarmið skiptu þau máli og fara yfir hvernig kynna mætti betur ferli við rýmingu og endurkomu.








