Til stendur að hefja sölu húsa í Grindavík þótt óvissustig sé enn í gildi
Til stendur að hefja sölu íbúðarhúsa í Grindavík til baka þótt óvissustig almannavarna sé enn í gildi. Skilmálar kaupanna hafa hins vegar ekki verið ákveðnir. Þetta sagði Skarphéðinn Berg Steinarsson, verkefnisstjóri í málefnum Grindavíkur hjá forsætisráðuneytinu, þegar hann svaraði fyrirspurn í lok opins fundar um áhættumat bæjarins á þriðjudagskvöld.
Fundargestur spurði hvort ríkið myndi selja eignir til baka meðan óvissustigið stæði enn. Skarphéðinn svaraði því játandi og tók fram að það yrði hvers og eins að ákveða hvort hann keypti. Fyrst þyrfti þó að kynna skilmálana.
Verð og kjör enn óákveðin
Skarphéðinn sagði samráðshóp ríkisins og Grindavíkurbæjar vinna að húsnæðismálunum. Auk hans hefði verið kallaður saman hópur með fulltrúum úr grindvísku samfélagi og sérfræðingum til að fara yfir hugmyndir um sölu eigna í eigu Þórkötlu.
Ákveða þyrfti meðal annars hvernig sölunni yrði áfangaskipt, hverjir gætu keypt, á hvaða verði og kjörum og hvenær. Einnig þyrfti að huga að möguleikum nýrra íbúa til að flytja í bæinn og því hvernig þjónusta sveitarfélagsins fylgdi fjölgun íbúa. Skarphéðinn sagðist vonast til að hægt yrði að kynna tillögur þegar liði á október.
Pétur Markan bæjarstjóri sagði í umræðunum brýnt að íbúar fengju skýra kynningu á mögulegum kaupskilmálum. Hann nefndi sem dæmi að ræða þyrfti hvort sérstakur skilaréttur ætti að fylgja kaupum meðan jarðhræringarnar stæðu yfir. Það væri hugmynd til umræðu, ekki ákveðinn hluti kaupanna.






