Fréttir

Upplýsingar um hættuna forsenda þess að halda stöðunni grænni
Fimmtudagur 24. september 2026 kl. 08:20

Upplýsingar um hættuna forsenda þess að halda stöðunni grænni

Lögreglustjóri vill skýrari upplýsingar um ákvarðanir og endurkomu eftir mögulegan atburð

Góð upplýsingagjöf er ein af forsendum þess að niðurstaða áhættumats Grindavíkur geti áfram verið græn. Þetta sagði Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, á opnum fundi í Gjánni á þriðjudagskvöld. Hún minnti á að óvissustig almannavarna væri enn í gildi og að áfram þyrfti að tala skýrt um þá hættu sem væri til staðar.

Margrét sagði vinnuna við áhættumatið hafa einkennst af aukinni samvinnu og því að ólík sjónarmið hefðu fengið að heyrast. Öryggi Grindvíkinga væri sameiginlegt verkefni samfélagsins og viðbragðsaðila.

Stöðuupplýsingar á sex klukkustunda fresti

Í umræðum eftir erindin lagði Margrét áherslu á að íbúar, gestir og þeir sem færu um Grindavík þyrftu að vita hver staðan væri, hvaða leiðir væru í boði og hvernig rýming færi fram. Upplýsingar um áhættuna væru hluti af örygginu, þótt niðurstaða núverandi mats væri græn.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Hún sagði jafnframt mikilvægt að viðbragðsaðilar útskýrðu betur ákvarðanir sínar þegar til atburðar kæmi. Markmiðið væri að birta stöðuupplýsingar á um sex klukkustunda fresti, einnig þegar engar stórar breytingar hefðu orðið, svo fólk vissi hvað væri verið að gera og hvaða gögn væru til skoðunar.

Endurkoma eftir atburð ræðst af aðstæðum

Margrét ræddi einnig hvers fólk gæti vænst eftir nýjan atburð og rýmingu. Að hennar sögn gæti tekið um sólarhring að afla þeirra gagna sem þyrfti til að leggja heildstætt mat á aðstæður. Fólk ætti því almennt ekki að gera ráð fyrir að ákvörðun um endurkomu lægi fyrir fyrr en eftir þann tíma.

Undantekningar gætu þó orðið, til dæmis ef aðstæður leyfðu fyrr aðgang til verðmætabjörgunar. Þá nefndi hún um 12 til 14 klukkustundir sem mögulegan tíma en undirstrikaði að slíkt færi alfarið eftir hverjum atburði. Fyrirtæki þyrftu jafnframt að hafa áætlanir um hvaða verðmætum yrði forgangsraðað.

Margrét sagði unnið að því að gera upplýsingar um þrepaskipt ferli eftir atburði aðgengilegar á vef almannavarna. Með skýrari upplýsingum um ferlið væri hægt að draga úr óvissu og byggja upp traust þegar mest reyndi á.

Bílakjarninn
Bílakjarninn