Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Verkfalli flugvirkja Icelandair aflýst
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 23. september 2026 kl. 11:22

Verkfalli flugvirkja Icelandair aflýst

Verkfalli flugvirkja hefur verið aflýst. Flugvirkjafélag Íslands og Icelandair hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu og ætla að nýta næstu fjórar vikur til markvissra viðræðna að því er fram kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu.

Allt flug Icelandair frá Keflavík og Reykjavík síðdegis í dag er á áætlun.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Yfirlýsing:

Eins og tilkynnt var í Kauphöll rétt í þessu hafa Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) og Icelandair komist að samkomulagi um að FVFÍ aflýsi yfirstandandi verkfalli félagsins í því skyni að forða frekara tjóni fyrir fyrirtækið, viðskiptavini, starfsfólk og aðra hagsmunaaðila.

Aðilar eru sammála um að nýta næstu 4 vikur til markvissra viðræðna samkvæmt verkstýrðri viðræðuáætlun ríkissáttasemjara með það að markmiði að ljúka samningagerð um nýjan kjarasamning. Á þessu tímabili munu aðilar vinna þétt saman að því að ná fram lausnum á þeim atriðum sem enn standa út af og skapa forsendur fyrir farsælli niðurstöðu.

Icelandair og FVFÍ  eru sammála um að halda áfram vinnu við þær tillögur og hugmyndir sem ræddar voru um nýliðna helgi en ekki gafst tími til að leiða til lykta áður en verkfallsboðunin átti að taka gildi.

Með ákvörðuninni um að aflýsa verkfalli skapast nauðsynlegur vinnufriður til áframhaldandi viðræðna. Aðilar lýsa yfir sameiginlegum vilja til að vinna af heilindum og með opnum huga að því að ná samkomulagi um nýjan kjarasamning sem styður við framtíðarhagsmuni starfsfólks og rekstrar félagsins.

Allt flug er því á áætlun seinnipartinn í dag frá Keflavík og Reykjavík.

Bílakjarninn
Bílakjarninn