„Núna er færi“ til að varða Grindvíkingum leiðina heim
Bæjarstjóri vill að niðurstaða áhættumatsins leiði til framfara í húsnæðismálum
Niðurstaða nýrrar vinnu við áhættumat Grindavíkur markar tímamót fyrir bæinn, að mati Péturs Markan bæjarstjóra. Í erindi sínu á opnum fundi í Gjánni á þriðjudagskvöld sagði hann næsta stóra verkefni vera að skapa Grindvíkingum raunhæfa leið til að snúa heim.
„Núna er færi,“ sagði Pétur og líkti stöðu bæjarins við báta sem hefðu legið í vari meðan óveður gekk yfir en sæju nú tækifæri til að halda áfram. Það tækifæri þyrfti að nýta af skynsemi.
Skóli, áhættumat og húsnæði
Pétur sagði þrjú markmið hafa verið sér ofarlega í huga þegar hann tók til starfa í júlí: að opna skólann, nýta nýtt áhættumat og koma húsnæði í eigu Þórkötlu aftur í notkun fyrir Grindvíkinga. Þessi verkefni tengdust öll því að „varða leiðina heim“.
Hann sagði eftirspurn eftir húsum í Grindavík og lagði áherslu á að markmið bæjarins væri að fá fólkið sitt heim. Áhættumat og skólahald væru mikilvæg skref í þeirri vegferð, en lausnir í húsnæðismálum skiptu sköpum fyrir endurreisn samfélagsins.
Bæjarstjórinn sagði niðurstöðu matsins byggjast á viðamikilli vinnu sérfræðinga og á því að hlustað hefði verið á heimamenn. Hún væri ekki fyrir fram ákveðin. Grindavíkurbær myndi fylgja matinu eftir, vakta forsendur þess og uppfæra eftir því sem bærinn og aðstæður þróuðust.
Kallar eftir skýrum skilmálum
Í umræðum eftir erindin sagði Pétur að tillögur um húsnæðiskaup þyrftu að endurspegla fjölbreyttar aðstæður Grindvíkinga. Lausnirnar yrðu að vera aðgengilegar og taka mið af þeim veruleika sem fólk byggi við. Hann taldi mikilvægt að hugmyndir og tillögur lægju fyrir í október.
Pétur kallaði jafnframt eftir betri upplýsingum til íbúa um þá skilmála sem kynnu að fylgja kaupum á húsnæði meðan náttúruvá væri enn til staðar. Hann nefndi sem dæmi að ræða þyrfti hvort kaupendur ættu að hafa einhvers konar skilarétt í tiltekinn tíma. Slík ákvæði hafa ekki verið ákveðin, en að hans mati þurfa sérstakir og skýrir skilmálar að liggja fyrir áður en fólk tekur ákvörðun um kaup.






