Hver á varnargarðana við Grindavík?
Eignarhald og umsjón enn til úrlausnar
Hver á varnargarðana við Grindavík og hver á að sjá um þá til framtíðar? Þessari spurningu var varpað fram á opnum fundi um nýtt áhættumat bæjarins í Gjánni á þriðjudagskvöld. Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn og yfirmaður almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, sagði að setjast þyrfti niður og leysa úr málinu.
Runólfur benti á að varnargarðar væru víða um land og að sveitarfélög færu sums staðar með umsjón þeirra. Hann taldi að þróunin gæti orðið sú sama í Grindavík, en sagði fyrirkomulagið þar þurfa frekara samtal. Ekki kom fram í svari hans hver færi nú með eignarhald varnargarðanna við bæinn.
Pétur Markan bæjarstjóri tók einnig til máls um garðana. Hann sagðist telja Grindavíkurbæ best til þess fallinn að eiga þá til lengri tíma og þróa þá þannig að þeir yrðu hluti af umhverfi bæjarins. Hvernig eignarhaldi og umsjón yrði háttað væri þó enn eftir að ræða og útfæra.







