Bjóða ungum rafkrossaraökumönnum fríar æfingar eftir viðvörun lögreglu
Lögreglan á Suðurnesjum hefur áhyggjur af því að börn og ungmenni aki sífellt öflugri rafmagnshjólum og rafmagnskrossurum á götum og göngustígum. Í kjölfar viðvörunar lögreglunnar hefur Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness boðið rafkrossaraökumönnum að æfa án endurgjalds út tímabilið.
Í færslu lögreglunnar segir að sum rafknúin tæki geti náð allt að 100 km hraða á klukkustund og að í sumum tilvikum sé auðvelt að breyta stillingum þeirra svo þau fari hraðar en við kaup. Lögreglan hvetur foreldra til að kanna hraða tækjanna og hvort hraðatakmörkunum hafi verið breytt.
Lögreglan bendir jafnframt á að aðrar reglur geti gilt um tæki sem fara hraðar en 25 km á klukkustund, meðal annars um skráningu, akstursstaði og réttindi ökumanns. Það eitt að tæki gangi fyrir rafmagni þýði ekki að barn megi aka því á göngustígum eða í almennri umferð.
Í athugasemd við færsluna segir Sigurður Stefánsson, formaður barna- og unglingastarfs Vélhjólaíþróttafélags Reykjaness, að félagið vilji fá rafkrossara á æfingar. Þær séu á laugardögum klukkan 10–12 meðan frost og veður leyfa. Þátttaka sé ókeypis út tímabilið, en gerð sé krafa um löglegan hjálm, brynju, motocrossskó og hlífar.
„Við viljum að börnin fái útrásina hjá okkur en ekki á götunum,“ segir Sigurður í athugasemd. Hann tekur undir hvatningu lögreglunnar um að foreldrar gangi úr skugga um að hraðatakmarkari hjólanna hafi ekki verið aftengdur.








