Visitor
Visitor

Fréttir

40 milljarða fiskeldisverkefni Samherja tekur á sig mynd á Reykjanesi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 25. september 2026 kl. 05:38

40 milljarða fiskeldisverkefni Samherja tekur á sig mynd á Reykjanesi

Sextíu og sex eldisker taka sama flatarmál og 110 fimmtíu metra langar keppnissundlaugar.

Áætlað er að taka á móti fyrstu laxaseiðunum í nýrri laxeldisstöð Samherja á Reykjanesi í apríl næstkomandi. Verkefnið hefur verið í undirbúningi í um sjö ár og er eitt það stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Framleiðslugeta mun verða þegar framkvæmdum lýkur 30 þúsund tonn af laxi á ári. Í fullbyggðri stöð verða 66 eldiskeri sem taka svipað pláss og 110 keppnislaugar.

Gunnar Dagur Darrason, framkvæmdastjóri hjá Samherja Landeldi, kynnti verkefnið á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar og upplýsti að framkvæmdir við Eldisgarð, risavaxið landeldisverkefni Samherja fiskeldis í Auðlindagarði HS Orku á Reykjansi gangi vel og séu samkvæmt áætlun.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Uppbygging í þremur áföngum og 110 keppnissundlaugar af eldisrými

Stærðargráða verkefnisins er gríðarleg, en í fullbyggðum eldisgarði verður framleiðslugetan um 30.000 tonn af laxi. Það er tæplega tífalt stærri framleiðsla en núverandi laxeldisstöð Samherja, Silfurstjarnan, býr yfir. Til að halda vel utan um framkvæmdina er verkefninu skipt upp í þrjá áfanga þar sem hver áfangi um sig hefur framleiðslugetu upp á um 10.000 tonn af slægðum laxi, eða um 12.000 tonn af óslægðum fiski. Í fullbyggðri stöð verða samtals 66 eldisker og mun heildareldisrýmið mælast um 273.000 rúmmetrar, sem jafngildir rúmmáli 110 keppnissundlauga. Mannvirkin samanstanda af stoðbyggingum, þremur löngum áframeldisbyggingum og sláturaðstöðu en hver áframeldisbygging verður um 500 metra löng og flæðir fiskurinn í gegnum allt ferlið frá vinstri til hægri.

Risaáfangi upp á 40 milljarða og steypubíll á hverri klukkustund

Kostnaður við fyrsta áfanga er áætlaður um 40 milljarða króna og er um að ræða mikla innviðafjárfestingu á áður ósnertu svæði. Í þeim áfanga einum verða steyptir um 15.000 rúmmetrar af steypu og lagðir 12 kílómetrar af lögnum. Til að setja hraða framkvæmda í samhengi steypti fyrirtækið úr 300 steypubílum í ágústmánuði einum, sem jafngildir því að einn steypubíll hafi farið út í eldisgarðinn á hverri einustu vinnustund allt tímabilið.

Hundrað störf í rekstri og ný tækifæri í nærumhverfinu

Framkvæmdin hefur þegar haft mikil efnahagsleg áhrif á Suðurnesjum og skapar um 100 störf að jafnaði á byggingartímanum fyrir iðnaðarmenn og verkfræðinga í vaxandi iðnaði. Þegar stöðin verður komin í fullan rekstur munu um 60 manns starfa beint við eldið í stöðinni og um 40 manns við úrvinnslu afurða. Gunnar Dagur benti á að vinnustaðurinn verði mjög tæknivæddur og að tæknistig og framleiðni verði há til að tryggja að framleiðslan verði fyllilega samkeppnishæf á alþjóðamarkaði.

Aðalástæða staðarvalsins í Auðlindagarði HS Orku er aðgengi að hlýsjó, ferskvatni og raforku í návígi við Reykjanesvirkjun. Samherji stefnir að því að nýta þessa strauma en líka að búa til nýjar hliðarafurðir og strauma sem aðrir aðilar í nærumhverfinu geta nýtt til frekari verðmætasköpunar á svæðinu.

Gunnar Dagur Darrason, framkvæmdastjóri hjá Samherja Landeldi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn