Þurftu ekki að hugsa sig lengi um að opna fasteignasölu í Reykjanesbæ
„Það eru mikil sóknarfæri og uppbygging í Reykjanesbæ og á Suðurnesjum og því vorum við fljótir að taka ákvörðun um að opna útibú á svæðinu eftir að sú hugmynd kom upp,“ segja eigendur Valhallar fasteignasölu, fasteignasalarnir og lögmennirnir Óskar H. Bjarnasen og Snorri Björn Sturluson, sem opnaði við Hafnargötu 91 í Keflavík síðastliðið vor.
Gylfi Þór Gylfason fasteignasali er útibússtjóri Valhallar í Reykjanesbæ en hann hefur búið í Reykjanesbæ í fimmtán ár. Gylfi, sem hefur starfað hjá Valhöll í nokkur ár, mætti með hugmyndina um að opna útibú í Reykjanesbæ inn á borð Óskars og Snorra og leist þeim strax mjög vel á hugmyndina.
Þrjátíu ára fasteignasala
Í viðtali við Víkurfréttir segja þeir Óskar og Snorri að Valhöll sé þrjátíu ára gömul fasteignasala en þeir hafi tekið við rekstrinum árið 2023. Þeir segja að Reykjanesbær og nágrenni hafi vaxið sem ákjósanlegt búsetu- og atvinnusvæði að undanförnum árum og mikil uppbygging og íbúafjölgun hafi verið í nokkurn tíma. „Við höfum mikla trú á Suðurnesjum og sjáum mörg sóknarfæri þar. Við þurftum því ekki að hugsa okkur lengi um að opna skrifstofu í Reykjanesbæ þegar hugmyndin kom á okkar borð, ekki er verra að vera með heimamann í okkar liði en Gylfi Þór hefur verið lengi á svæðinu og því vel tengdur þar.“
Aðspurðir segja þeir að fasteignaverð á Suðurnesjum og sérstaklega í Reykjanesbæ hafi hækkað mikið í samanburði við höfuðborgarsvæðið á undanförnum árum. Mikil uppbygging á Suðurnesjum og möguleikar hafi haft áhrif en vissulega hafi margir flutt á svæðið þegar verðið á eignum var nokkuð lægra en á höfuðborgarsvæðinu.
Þurfa að hugsa út fyrir boxið
Valhöll opnaði í vor í Reykjanesbæ og Gylfi Þór segir að þrátt fyrir áskoranir á fasteignamarkaði á þessum tíma hafi gengið vel. „Munurinn er vissulega sá að núna tekur lengri tíma að selja eignir en þegar markaðurinn var hagstæðari í vöxtum og aðstæður betri í þjóðfélaginu. Það þarf að hafa meira fyrir sölunni núna. Íslendingar eru vanir því að eignir seljist frekar hratt, ólíkt því sem gerist víða erlendis þar sem algengt þykir að taki 6-12 mánuði að selja eignir. Núna þarf að hugsa út fyrir boxið og skoða ýmsa möguleika eins og íbúðaskipti. Við höfum selt talsvert af atvinnuhúsnæði hér á svæðinu en einnig íbúðir og sérbýli í flestum hverfum. Framboðið á fjölbreyttu íbúðarhúsnæði er mjög gott og við erum t.d. að selja fyrir BYGG sem er með vandaðar íbúðir í Reykjanesbæ.
Kaupendamarkaður
Núna má segja að það sé nokkur kaupendamarkaður og verð hefur staðið í stað í alllangan tíma. Það eru því mörg ágæt kauptækifæri um þessar mundir því markaðurinn á til að fara aftur upp eins og sagan hefur sýnt. Aðstæður fyrir fyrstu kaupendur að kaupa íbúðir í dag eru ágætar þar sem þeim stendur til boða að kaupa íbúðir með 95% veðsetningu í gegnum HMS á íbúðum sem falla þar undir og þá lána sumir bankar fyrstu kaupendum allt að 90% af kaupverðinu. Þó að vextir séu háir núna þá er leiga líka há. Markaður fyrir fyrstu kaupendur getur því verið hagstæðari núna en margir halda. Framboð íbúða er gott, t.d. í Innri Njarðvík, Ásbrú, Keflavík og víðar á Suðurnesjum.“
Þeir félagar segja að það muni hafa jákvæð áhrif að Reykjanesbær ákvað að afnema byggingarréttargjöld og eftir þá ákvörðun hafi áhugi verktaka á lóðum aukist mikið.
Gylfi Þór segir að staðsetning fasteignasölunnar í Reykjanesbæ sé mjög góð. Undir það taka þeir Snorri og Óskar og segja að stefnan sé að bæta við starfsfólki þegar fram líða stundir til að veita sem besta þjónustu.








