Visitor
Visitor

Viðskipti

Retreat við Bláa Lónið hlýtur annan Michelin-lykil
Miðvikudagur 23. september 2026 kl. 09:29

Retreat við Bláa Lónið hlýtur annan Michelin-lykil

The Retreat við Bláa Lónið hefur hlotið tvo Michelin-lykla í vali ársins 2026 og er þar með eina hótelið á Íslandi með tvo lykla. Highland Base í Kerlingarfjöllum heldur jafnframt sínum Michelin-lykli sem staðurinn hlaut á síðasta ári.

Michelin-lyklar eru veittir hótelum sem skara fram úr þegar kemur að heildarupplifun gesta. Matið nær til dvalarinnar í heild, þar á meðal gæða þjónustunnar, hönnunar og þess hvernig sérkenni staðarins njóta sín.

Hjá Retreat mótast upplifun gesta  af nálægðinni við náttúruna, rólegu umhverfi, einstakri þjónustu þar sem vellíðun og þarfir gesta eru í forgrunni. Hönnunin tekur mið af umhverfinu og þjónustan af þörfum hvers gests.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

„Við erum ákaflega stolt af þessari viðurkenningu. Hún er fyrst og fremst mikið hrós til starfsfólksins okkar sem tekur svo vel á móti gestum og leggur sig fram um að gera dvöl þeirra einstaka. Það er hlýjan, umhyggjan og fagmennskan, í stóru sem smáu, sem gerir dvölina einstaka. Viðurkenning sem þessi er einnig jákvæð fyrir  íslenska ferðaþjónustu  í heild og styrkir enn frekar orðspor Íslands sem áfangastaðar“, Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Bláa Lóninu

Highland Base í Kerlingarfjöllum heldur sínum Michelin-lykli. Þar njóta gestir dvalar  í einstöku umhverfi miðhálendisins þar sem náttúruupplifun, kyrrð og vönduð þjónusta fara saman. Viðurkenningarnar eru staðfesting á því góða starfi sem unnið er á báðum stöðum og hvatning til að halda áfram  að þróa þjónustuna og skapa framúrskarandi upplifun fyrir gesti, segir í frétt frá Bláa Lóninu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn