KSK eignir
KSK eignir

Viðskipti

Algalíf hlýtur ein virtustu markaðsverðlaun fæðubótarefnaiðnaðarins
Sunnudagur 6. september 2026 kl. 08:45

Algalíf hlýtur ein virtustu markaðsverðlaun fæðubótarefnaiðnaðarins

Íslenska líftæknifyrirtækið Algalíf hefur hlotið verðlaun fyrir markaðsverkefni ársins (e. Marketing Initiative of the Year) á NutraIngredients-Asia Awards 2026 fyrir endurmörkun vörumerkisins Astalíf™.

NutraIngredients-verðlaunin eru ein virtustu verðlaun heims á sviði næringar, heilsuvara og fæðubótarefna. Verðlaunin voru afhent í Bangkok samhliða Vitafoods Asia, einni stærstu fagsýningu Asíu á þessu sviði.

Langbest Ljósanótt
Langbest Ljósanótt

Alls bárust 256 tilnefningar til NutraIngredients-Asia Awards í ár, fleiri en nokkru sinni fyrr. Alþjóðleg dómnefnd óháðra sérfræðinga úr greininni lagði mat á tilnefningarnar.

Stór alþjóðlegur markaður fyrir fæðubótarefni

Alþjóðlegur markaður fyrir fæðubótarefni og virk innihaldsefni í heilsuvörur er stór og ört vaxandi atvinnugrein. Þar starfa meðal annars framleiðendur vítamína, steinefna, jurtavara, próteina, þörungaafurða og annarra efna sem notuð eru í vörur ætlaðar til að styðja við heilsu og vellíðan.

Algalíf starfar á fyrirtækjamarkaði innan þessarar alþjóðlegu virðiskeðju. Fyrirtækið framleiðir náttúrulegt astaxantín úr örþörungnum Haematococcus pluvialis og selur hráefni sín til framleiðenda fæðubótarefna, alþjóðlegra heilsuvörumerkja, vöruþróunarfyrirtækja og dreifingaraðila víða um heim.

Astalíf™ er alþjóðlegt vörumerki Algalífs fyrir náttúruleg astaxantínhráefni. Astaxantín er rautt litarefni og öflugt andoxunarefni sem örþörungar mynda frá náttúrunnar hendi. Það er meðal annars notað sem virkt innihaldsefni í fæðubótarefni. Meira en hundrað vörumerki um allan heim nota hráefni frá Algalíf í vörur sínar.

Verðlaunin snúa að umfangsmikilli, tveggja ára endurmörkun Astalíf™ og breyttri framsetningu Algalífs á alþjóðamarkaði.

Íslensk þekking og framleiðsla kynnt á alþjóðamarkaði

Markmið verkefnisins var að byggja Astalíf™ upp sem leiðandi hágæðavörumerki á alþjóðlegum fyrirtækjamarkaði og styrkja vísindalegan, tæknilegan og markaðslegan stuðning við viðskiptavini Algalífs.

Stefna verkefnisins byggðist á fimm meginstoðum sem endurspegla sérstöðu fyrirtækisins: gæðum, áreiðanleika, sjálfbærni, vísindum og nýsköpun. Íslenskur uppruni er einnig afar mikilvægur í öllu markaðsstarfi Algalífs.

Svavar Halldórsson, sölu- og markaðsstjóri Algalífs, hafði frumkvæði að verkefninu og leiddi það, en hann ber ábyrgð á sölu- og markaðsstarfi fyrirtækisins á heimsvísu.

„Það er okkur mikill heiður að hljóta ein virtustu verðlaun í okkar atvinnugrein,“ segir Svavar. „Ég hef notið þeirra forréttinda að leiða verkefnið, en árangurinn byggist á sameiginlegu framlagi, þekkingu og vinnu alls starfsfólks Algalífs.“

„Öflugt markaðsstarf verður að byggjast á raunverulegum verðmætum. Allt sem við segjum um Algalíf byggist á þeirri þekkingu og vinnu sem á sér stað víðs vegar um fyrirtækið – við ræktun, framleiðslu, gæðamál, vísindastarf, vöruþróun, aðfangastýringu, sölu og markaðsmál. Þessi verðlaun eru viðurkenning fyrir allt starfsfólk Algalífs.“

Heildstæð endurmörkun

Verkefnið náði til nær allra þátta í alþjóðlegri framsetningu Algalífs og vörumerkisins Astalíf™.

Meðal þess sem ráðist var í var endurnýjun vörumerkja og vefsíðu, ný hönnun og framsetning á alþjóðlegum fagsýningum, aukin vísindamiðlun, stafrænar herferðir, kynningar, viðburðir og þjálfun fyrir viðskiptavini og dreifingaraðila.

Algalíf jók jafnframt stuðning við viðskiptavini sína, meðal annars með sammerkingum, þar sem alþjóðleg vörumerki útskýra uppruna hráefnisins á umbúðum og í markaðsefni, sérhæfðu markaðsefni og tæknilegri og vísindalegri upplýsingagjöf.

Endurmörkunin tengdist einnig fjárfestingu fyrirtækisins í vísindum og vöruþróun. Þar á meðal var markaðssetning Astalíf™ 20, náttúrulegrar astaxantínolíu með háum styrkleika, og AstaBead™ 5, astaxantíndufts sem meðal annars má nota í töflur, gúmmíhlaup og hylki.

Mikill vöxtur samhliða verkefninu

Endurmörkunin hefur farið saman við mikinn vöxt í sölu og aukinn sýnileika Algalífs á alþjóðamarkaði. Sala fyrirtækisins hefur vaxið hratt undanfarin ár og pantanir hafa haldið áfram að aukast á þessu ári.

Stafræn miðlun Algalífs hefur jafnframt eflst verulega. Fleiri heimsækja vef fyrirtækisins, sýnileiki þess á samfélagsmiðlum hefur aukist og Astalíf™ hefur náð til stærri alþjóðlegs hóps viðskiptavina og samstarfsaðila.

„Við erum gríðarlega stolt af því að koma með þessi verðlaun heim til Íslands,“ segir Svavar. „Þau staðfesta hversu langt við höfum náð en auka jafnframt metnað okkar til framtíðar. Við ætlum að halda áfram að fjárfesta í vísindum, nýsköpun, sjálfbærni og þjónustu við viðskiptavini og byggja Astalíf™ upp sem eitt traustasta vörumerki heims fyrir náttúrulegt astaxantín.“

Um Algalíf

Algalíf er íslenskt líftæknifyrirtæki og leiðandi framleiðandi í Evrópu á sjálfbæru, náttúrulegu astaxantíni úr örþörungnum Haematococcus pluvialis.

Örþörungarnir eru ræktaðir í lokuðum ljósræktunarkerfum með hreinu íslensku vatni og endurnýjanlegri jarðvarmaorku. Astalíf™-hráefni fyrirtækisins eru seld framleiðendum fæðubótarefna, heilsuvörumerkjum og dreifingaraðilum víða um heim.

Nánari upplýsingar um Algalíf má finna á www.algalif.com.

Um NutraIngredients-Asia Awards

NutraIngredients-Asia Awards verðlauna framúrskarandi árangur og nýsköpun í alþjóðlegum næringar- og fæðubótarefnaiðnaði. Verðlaunin ná meðal annars til hráefna, fullunninna vara, vísindarannsókna, nýsköpunar og markaðsstarfs.

Nánari upplýsingar má finna í opinberri tilkynningu um verðlaunahafa ársins 2026 og á vef NutraIngredients-Asia Awards.

Bílakjarninn
Bílakjarninn