Langar stundum að vera útilegutýpan en fór til Austurríkis og New York
Kristín Þórarinsdóttir ökukennari og framkvæmdastjóri Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur verður á þönum með Keflvíkingum á Ljósanótt en ætlar líka að njóta viðburða og hefur tryggt sér miða á Heimatónleikana.
Kristín Þórarinsdóttir, ökukennari og framkvæmdastjóri Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur verður eins og margir heimamenn á þönum á Ljósanótt. En hún hefur notið sumarsins og hlakkar til Ljósanætur þar sem hún á sínar góðu stundir með fjölskyldu og vinum. Kristín náði til dæmis að tryggja sér miða á hina vinsælu Heimatónleika verða að venju á hátíðinni.
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
Ég náði að taka mér ágætis frí frá dagvinnunni og verja tíma með börnunum mínum og fjölskyldu. Ég er ökukennari líka þannig að það er erfitt að vera alveg í fríi en ég náði að tvinna þetta einhvern veginn saman.
Hvað stóð upp úr?
Tvær utanlandsferðir standa upp úr þetta sumarið. Í júlí fórum við systkinin og fjölskyldur ásamt mömmu til Austurríkis þar sem við dvöldum á dásamlega fallegum stað og nutum þess að eyða tíma saman. Ég tók svo skyndiákvörðun og fór með börnin til New York um verslunarmannahelgina. Tvær mjög ólíkar ferðir þar sem í Austurríki var ekkert nema kyrrð og ró en New York algjör andstæða.
Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?
Ég hef mjög gaman af því að fylgjast með íþróttum og hef lengi fylgst með fótboltaliðunum okkar og ef ég ætti að nefna eitthvað sem hefur komið á óvart í sumar þá er það kannski helst karlaliðið okkar í fótbolta en það hefur glatt mig síðustu tvö sumur. Það er einstaklega gaman að fylgjast með þeim spila þetta tímabil og ég hvet Keflvíkinga til að mæta og fylgjast með þeim leikjum sem eftir eru.
Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands?
Ég er ekki beint útilegutýpan þó að mig langi stundum að vera það, sérstaklega þegar ég skoða samfélagsmiðlana. Ég tengi ekkert sérstaklega við ákveðinn stað en mér líður mjög vel í hinum ýmsu baðlónum og ef ég ætti að nefna einhvern stað þá væri það kannski Skógarböðin á Akureyri.
Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur?
Á veturna tekur körfuboltinn við, ég vinn í Blue-höllinni við að reka körfuknattleiksdeildina og það fer mikill tími í það á veturna. Börnin mín eru bæði að æfa körfubolta þannig að það kemst lítið annað að á okkar heimili.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Ég er ekkert sérstaklega mikið fyrir mannmergð og þræði ekki útihátíðir en ég bít á jaxlinn á Ljósanótt. Það er ákveðin stemning sem myndast í bæjarfélaginu þessa helgi og það er gaman að sjá bæinn lifna við.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
Ég keypti miða á Heimatónleikana og við vinkonurnar ætlum að kíkja þangað, annað er nú ekkert skipulagt og verður bara tekin ákvörðun um það þegar nær dregur. Körfuknattleiksdeildin verður svo með sölu og viðburð á Ljósanótt sem ég tek þátt í að vinna við.
Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?
Við fjölskyldan höfum undanfarin ár labbað af hátíðarsvæðinu tímanlega á laugardagskvöldinu til að ná á hól rétt hjá heimili okkar og sest þar niður til að horfa á flugeldasýninguna. Af öllu sem gert er þessa helgi þá held ég bara að þessi stund á tilviljanakenndum hól með börnunum mínum sé besta minningin frá Ljósanótt.
Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Það er kannski helst það sem ég nefni hér að ofan, að horfa á flugeldasýninguna fjarri mannmergðinni með börnunum mínum. Annars höfum við vinkonurnar yfirleitt farið á tónleika á föstudagskvöldinu og það verður engin breyting á þessa Ljósanótt.







