Gott slútt á sumri og gefur tóninn inn í haustið og rútínuna
Atli Geir Júlíusson er einn af fáum Íslendingum sem hafa ekki farið til Tenerife en hann er á leiðinni
Atli Geir Júlíusson, framkvæmdastjóri Verkfræðistofu Suðurnesja, varði sumarfríinu í faðmi fjölskyldunnar. Atli Geir er Njarðvíkingur en hefur búið lengst af í Grindavík og er einn af „brottfluttum“ íbúum Grindavíkur eftir goslætin þar við bæinn.
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
Ferðalög erlendis og góðar helgar í búðstaðnum okkar á Flúðum. Hefði reyndar viljað eyða meiri og betri tíma „heima“ í Grindavík en það bíður vonandi betri tíma. Ég notaði líka tímann til að hlaupa þar sem ég hljóp hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu og stefni á að taka þátt í Grindavík Ultra og fleiri hlaupum núna í lok sumars og í haust.
Hvað stóð upp úr?
Ferð með fjölskyldunni til Króatíu stóð upp úr, frábær ferð í alla staði.
Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?
Tónleikar Kaleo á Þingvöllum, en þangað fór ég með konunni og mömmu og pabba. Veðrið var eins og best verður á kosið, frábær tónlist og góður félagsskapur. Þá kom sólmyrkvinn mér skemmtilega á óvart, magnað náttúrufyrirbæri.
Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands?
Stykkishólmur, fer alls ekki nógu oft þangað en Hólmurinn heillar.
Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur?
Við hjónakornin ætlum til Tenerife í eina viku en ég er líklega einn af fáum Íslendingum sem hafa ekki komið til eyjunnar. Svo mun maður fylgja börnunum eftir í því sem þau taka sér fyrir hendur, syninum í körfunni og svo dótturinni í leikhúsinu en hún ætlar að stíga á stóra svið Þjóðleikhússins og fara með hlutverk í jólasýningu Þjóðleikhússins, „Hetjur hafsins“, sem verður frumsýnd á annan í jólum.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Mér finnst Ljósanótt stórskemmtileg bæjarhátíð, ein af þessum stóru og hefur sinn sjarma. Tímasetningin á henni finnst mér góð því hún svona slúttar sumrinu og gefur tóninn inn í haustið og rútínuna.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
Ég stefni á að mæta á gospeltónleika hjá Kór Njarðvíkurkirkju á miðvikudeginum og í kjötsúpuveislu Skólamatar á föstudagskvöld. Svo tekur maður árlega röltið niður Hafnargötuna til að kíkja í verslanir og skoða þær sýningar sem eru í boði. Ég hef líka undanfarin ár mætt í árgangagönguna sem mér finnst einstaklega skemmtileg hefð og svo er það að sjálfsögðu hápunkturinn að njóta tónleikanna og flugeldasýningarinnar á laugardeginum með fjölskyldunni. Mér finnst líka líklegt að ég eigi eftir að kaupa töluvert af miðum í tívolítæki fyrir dótturina.
Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?
Erfitt að velja einhverja eina, en það sem stendur alltaf upp úr er samvera með fjölskyldu og vinum.
Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Matur hjá mömmu og pabba, yfirleitt súpa.









