Á ferð og flugi í fríinu - í loftbelg yfir sveitum Póllands
Tryggvi Þór Bragason mætir alltaf í árgangagönguna til að hitta skólafélagana úr kærleiksárganginum 1967
Tryggvi Þór Bragason, leiðsögumaður og verkefnastjóri, fór á flug í sumarfríinu í orðsins fyllstu merkingu og toppaði það með því að skella sér í loftbelg yfir sveitir Póllands. Hann flaug líka til Tene en náði sér niður á jörðina í sumar með göngum um Reykjanesið og góðum tímum í Borgarfirði.
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
Sumarfríið var tekið í nokkrum pörtum. Í byrjun sumars fórum við hjónin í viku boðsferð til Póllands sem var alveg einstakt. Við vorum þrjá daga í Varsjá og fjóra daga í sveitum Póllands og okkur leið eins og hefðarfólki; móttökurnar voru þannig. Þar gerðum við líka eitthvað sem ég hélt að ég myndi ekki gera, en það var að fara í loftbelg. Farið var í 1200 metra hæð í 1,5 klst. flugferð, sem kom skemmtilega á óvart.
Í júlí var farið með fjölskylduna, börn, barnabörn og tengdason í tíu daga ferð til Tenerife. Þvílíkur gæðatími sem það var, dýragarður, vatnsrennibrautagarður, ströndin, sundlaugin og bara að njóta þess að vera saman. Hápunktur sumarsins.
Þá var líka eytt nokkrum dögum á Grjóti í Borgarfirði, bæði til að dytta að húsakosti og líka til að njóta með vinum.
Miðvikudagsgöngurnar með Garðarssystrum um Reykjanesið hittu í mark hjá okkur hjónum og þá sérstaklega ein gangan, en ekki má segja frá því hvað var gert þar að beiðni leiðsögusystranna. Svo er smá sumarfrí rétt fyrir Ljósanótt þar sem við hjónin fórum í aðra boðsferð, en þá til Vancouver í Kanada.
Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja á Íslandi?
Þar sem ég starfa m.a. sem leiðsögumaður hefur maður kannski þau forréttindi að fá að heimsækja hina ýmsu staði. Ferðir í Landmannalaugar eru alltaf geggjaðar. Bæði staðir sem stoppað er á sem og góður göngutúr um Landmannalaugar. Maður gæti haldið að maður sé staddur í litabók á þessum stað.
Einnig eru fjórhjólaferðir upp í Fljótshlíðina einstaklega skemmtilegar. Þessar ferðir eru farnar með Óbyggðaferðum sem gerir þetta að frábærri upplifun.
Verkefnalisti vetrarins?
Vonandi fótboltaferð á Emirates í London. Eitthvað „gæderí“ og einhverjar fleiri utanlandsferðir og jú, ekki má gleyma pólitíkinni þar sem ég er í atvinnu- og hafnarráði.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Ég er alveg heillaður og held að ég hafi tekið þátt í þeim öllum. Passa að setja Ljósanótt inn á dagatalið um leið og það er uppfært þannig að ekkert annað þvælist inn á þessa daga.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
Heimatónleikar og árgangagangan (þar sem ég tilheyri þeim einstaka árgangi 1967) eru alltaf á „to do“-listanum en svo er maður bara líflegur þátttakandi og sækir sýningar og er bara á röltinu um bæinn þessa daga.
Hver er besta minningin frá Ljósanótt?
Mig langar bara að segja fyrsta Ljósanóttin, ég man mjög vel eftir henni og svo er bara frábært að sjá hvað þetta hefur stækkað og dafnað og já, líka hvað það koma margir að þessu.
Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Meðan foreldrar mínir voru á lífi þá vorum við alltaf með finnska kjötsúpu á laugardeginum en eftir að þau kvöddu þennan heim höfum við breytt aðeins og reynum að troða okkur inn á einhverja sem sjá aumur á okkur. Það sem ég hef alltaf gert er árgangagangan, gaman að geta hitt krakkana úr kærleiksárganginum allavega einu sinni á ári.










