Minnisstætt þegar kveikt var á Berginu á fyrstu Ljósanóttinni
Fullt af ferðalögum hjá Grétari Má Garðarssyni og fjölskyldu í sumar. Ásbyrgi fallegasti staðurinn á Íslandi.
Það hefur verið nóg um að vera hjá Grétari Má Garðarssyni og fjölskyldu á liðnu sumri. Sumarfríið var fullt af ferðalögum, bæði innanlands sem erlendis, ásamt því að stór áfangamarkmið náðust á golfvellinum. Nú tekur haustið við og fram undan er Ljósanótt, sem á sér stóran sess í hjarta Grétars.
Grétar þarf að vera talsvert á ferðinni starfa sinna vegna sem forstöðumaður hjá Isavia þar sem hann sinnir flugfélögum og markaðsmálum.
„Við fjölskyldan byrjuðum sumarið á að fagna 75 ára afmæli mömmu minnar í Toscana á Ítalíu í ógleymanlegri ferð. Þá stukkum við Sonja eiginkona mín til Toronto á tónleika með Post Malone. Við fórum í útilegur, spiluðum golf, fórum með strákana í langa helgarferð til Chicago og enduðum svo sumarfríið á Spáni í Los Alcazares í húsi tengdaforeldra minna. Alveg frábær staður til að hlaða batteríin fyrir komandi haust og vetur.“
Grétar segir að það sem hafi staðið upp úr í sumar hafi klárlega verið að ná loksins, eftir margra ára vinnu, að fá Sonju til að draga fram golfsettið að nýju. Nú geta þau spilað golf saman á sumrin og skíðað á veturna, sem honum finnst einfaldlega ekki geta verið betra.
Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?
Við Sonja getum ekki alltaf planað langt fram í tímann vegna vinnu og því komu þrjár af þessum fjórum utanlandsferðum óvænt inn en okkur finnst skyndiákvarðanir að mörgu leyti bestar.
Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands?
Grétar er að hálfu ættaður að norðan og hefur eytt mörgum stundum í Kelduhverfinu. Ásbyrgi stendur hjarta hans næst og er í hans augum fallegasti staður landsins. Þá nefnir hann einnig að alltaf sé gaman að heimsækja Snæfellsnesið.
Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur?
Halda áfram að rækta líkama og sál og búa til minningar með fjölskyldunni. Einnig ætlum við að skíða eins mikið og við getum bæði hérlendis og erlendis með fjölskyldu og vinum.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Ljósanótt er frábær viðburður sem hefur fastan stað í tilveru okkar sem búum hérna á svæðinu. Það er alltaf stemming sem myndast í kringum Ljósanótt og gaman að sjá hvað er margt í boði fyrir fjölskyldur.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
Fastir liðir eru náttúrulega að fara í tívolítækin og hoppukastalana með strákana, kíkja á nokkrar listasýningar og kjötsúputónleikana. Þá er hápunkturinn á laugardagskvöldinu þegar Ljósanótt nær hámarki.
Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?
Fyrsta Ljósanóttin þegar ljósin á Berginu voru kveikt. Ég man að það fannst mér ótrúlega fallegt og magnað að sjá og upplifa.
Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Tengdaforeldrar mínir hafa alltaf boðið fjölskyldunni til sín á laugardagskvöldið í mat og síðan förum við öll saman niður í bæ. Þá er það ómissandi þáttur af Ljósanótt þegar amma Jóna fer með barnabörnin og kaupir eitthvað dót sem gefur frá sér óhemju skemmtileg hljóð og allir gleðjast.








