Mannlíf

Söngviðri og samvera: Brekkusöngur í Innri-Njarðvík í kvöld
Föstudagur 4. september 2026 kl. 10:28

Söngviðri og samvera: Brekkusöngur í Innri-Njarðvík í kvöld

Mikið verður um dýrðir í Innri-Njarðvík í kvöld, föstudagskvöldið 4. september, þegar slegið verður upp alvöru brekkusöng. Dagskráin hefst klukkan 20:00 og stendur til klukkan 21:00.

Söngskemmtunin fer fram í brekkunni við Kambinn í Innri-Njarðvík, þar sem tilvalið er fyrir fjölskyldur og vini að koma saman, koma sér vel fyrir og taka undir í þekktum textum.

Það er trúbadorinn Guðlaugur Ómar sem mætir með gítarinn og leiðir sönginn af sinni alkunnu snilld. Hann mun tryggja létta stemningu og hita upp raddbönd viðstaddra með úrvali af þekktum dægurlögum.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Íbúar og gestir eru hvattir til að mæta vel klæddir miðað við veður, taka jafnvel með sér teppi eða útivistarsessu og eiga saman notalega og skemmtilega stund í kvöldhúminu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn